Til hamingju Íslendingar,þetta er glæsilegur árangur íslenska liðsins sem var að keppa í ýmsum íþróttagreinum á smáþjóðaleikunum í Mónakó um helgina,auðséð er að íslendingar eru á heimavelli þegar keppt er með öðrum smáþjóðum. Við íslendingar erum smáþjóð hvort sem okkur líkar betur eða verr,það sýnir sig þegar við erum í samkeppni við aðrar smáþjóðir þar stöndum við okkur mjög vel, en þegar kemur að samkeppni við stórþjóðir þá er ekki hægt að eiga von á sama árangri,við hugsum stórt og gerum okkur ef til vill ekki grein fyrir smæð okkar.Dagana 20-25 júni verða haldnir hér í Reykjavík 41st Alþjóðlegir leikar ungmenna,þessir leikar hafa verið haldnir árlega síðan 1968 og eru þeir viðurkenndir af Alþjóða Ólympíunefndinni frá árinu 1990.Hingað koma tæplega 1200 ungmenni frá um 54 löndum til að keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum, t.d. sundi,fótbolta,hanbolt, frjásar íþróttir ,golfi,júdó ,badminton og fl..það verður spennandi að fylgjast með unga fólkinu okkar sem keppa fyrir Íslands hönd á þessum leikum. Ef einhver hefur áhuga á að lesa meira um þessa Alþjóðleika ungmenna þá er heimasíðan
www.icgreykjavik.is
Athugasemdir
Já til hamingju Islendingar/þetta er frábært/þarna eigum við heima/ og lentum i öðru sæti/Kveðja Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 10.6.2007 kl. 18:34
Já þetta er glæsilegur árangur.
María Anna P Kristjánsdóttir, 10.6.2007 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.