Hvað með konur,þurfa þær líka pössun.

Ég held nú að það verði ekki margir karlmenn sem láta sjá sig í þessu pabba pössunar herbergi,ég geri ráð fyrir að þeir hafi meiri sómatilfinningu en það að láta sjá sig í slíkum geymslum.Ef konur fara að versla þá held ég að þær séu oftast að versla fyrir heimilið.Hvað eiga þær að gera, láta allt lönd og leið og setjast í sér herbergi fyrir konur og  horfa á Dr.Phil og karlarnir í öðru sér herbergi að horfa á boltaleiki.Hver á að sjá um innkaupin,er ekki best að þau geri það í sameiningu þegar þau geta.Wink Whistling
mbl.is Pabbar í pössun í Hagkaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég hugsa mér reyndar gott til pabbapössunarinnar ef við foreldrar mínir færum einhvern tíma að versla þarna í Holtagörðum - það er samt óvíst að minn aldraði (má ekki segja gamli) myndi eira við að horfa á fótbolta, það yrðu víst líka að vera þarna blöð og kaffi.

Annars finnst mér frekar hallærislegat að kalla þetta pabbahorn, af hverju ekki bara að tala um þetta sem afdrep fyrir verslunarlúna fætur (með eigendum, að sjálfsögðu)? 

Greta Björg Úlfsdóttir, 29.11.2007 kl. 21:01

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Sammála þér Greta, stundum sit ég úti í bíl á meðan Lalli verslar eða byrja að versla með honum og fer svo í bílinn á meðan hann klárar. Það væri ágætt að geta sest einvhersstaðar þar sem ekki er hávaðinn eins og inni í svona búðum með öllum "gargandi" ljósunum og allt það. En plís ekki fótboltasjónvarp! kaffibolla og svo Pál Óskar og Moniku tónlist, það væri ágætt.

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.11.2007 kl. 21:36

3 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Sammála ykkur báðum,þetta á ekki að einangrast við karlmenn konur þurfa líka að hvílast.

María Anna P Kristjánsdóttir, 29.11.2007 kl. 23:19

4 Smámynd: Brynjar Páll Rögnvaldsson

Veistu María ... ef ég væri ekki einhleypingur, þá myndi ég glaður fara með konunni að versla og slaka á þarna í þessu herbergi ... það mættu þó vera fleiri sæti þarna !!!!

Brynjar Páll Rögnvaldsson, 30.11.2007 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband