Vilhjálmur áfram !

Ekki vil ég dæma ákvörðun hans,en skrítið finnst mér að enginn  virðist vita um ákvörðun hans,hvorki borgarfulltrúar né borgarstjóri.Hvort þessi ákvörðun sé rétt eða ekki verður að koma í ljós, og Vilhjálmur mun standa eða falla með henni.Hvort þessi ákvörðun sé góð fyrir flokkinn er álitamál,vegna þess að það er stór hópur fólks sem ekki styður þessa ákvörðun.Ég vil óska honum góðs gengis og vona að ró komist innann borgarstjórnarinnar almennt.
mbl.is Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Mér finnst með ólíkindum hvernig íslenskir stjórnmálamenn þumbast við og sitja sem fastast, þó þér séu búnir að skandalisera eða klúðra málum út og suður, sumir eru meira að segja endurkjörnir í þing. Eini maðurinn sem hefur sagt af sér svo ég muni til út af svona máli er Þórólfur Árnason, en hann er heldur ekki pólitíkus!

Mér er sem ég sæi íslenskan ráðherra segja af sér á sömu forsendum og gerðist í Noregi nýverið - en kannski væri varla gerlegt hér að fara að því fordæmi, því þá myndi verða að kjósa upp á nýtt, því salir Alþingis myndu tæmast.

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við biðum og sjáum hvað kemur þarna út/Vinstri menn og allir fjölmiðlar eru bunir að taka hann af lifi að mínu áliti,"Dropin holar steininn " segir máltækið,en ennþá sér maður  ekki annað i stöðunni en styðja Villa og vona að allt fari vel/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 23.2.2008 kl. 13:43

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Ég held að það sé bara einn maður sem ráði þessu,þessi maður hefur haldið flokknum í heljargreipum í um þrjátíu ár og gerir það enn þó núna bak við tjöldin, en það þorir enginn í hann.Villi greyið er bara vanmáttugur og vængbrotinn búinn að ljúga úr og í, hann verður ekki trúverðugur.Ég hef ekki trú á því að hann eigi eftir að verða Borgarstjóri ég veðja á Hönnu Birnu. 

Guðjón H Finnbogason, 23.2.2008 kl. 14:24

4 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Ég held að við verðum bara að bíða og sjá til hvað verður,það verður að komast á friður innann borgarstjórnarflokksins.

María Anna P Kristjánsdóttir, 23.2.2008 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband