Þetta kemur í raun ekkert á óvart.

Fólk eins og ég sem hugsar í þúsundköllum ekki í milljónum eins og útrásarvíkingarnir gerðu,höfum vitað að spilaborgin myndi hrynja og fylliríið taka enda,það var bara spurning um tíma.

Ef við hefðum verið með góða viðskiptafræðinga eða hagfræðinga í frammlínu bannkana  væri staðan eflaust önnur í dag.En í staðin  höfum við verið með unga framagosa með hangandi $ merki á nefinu á sér, og sem kunnu ekki fótum sínum forræði.

Allt þetta bruðl sem hefur viðgengist hjá vissum hóp landsmanna,á ekki við hér á Íslandi,við erum bara venjuleg þjóð nýstigin uppúr torfbæjum,vinnuþjóð  sem hefur verið nokkuð sátt við lífernið hér á klakanum.

Það er kannski hallærislegt að vilja eiga gott og venjulegt líf,eiga sitt fallega og notalega heimili (hvort sem er í blokk eða einbýli), bíl  og utanlandsferð öðru hvoru,það þykir kannski hallærislegt að vera ekki í gæðakapphlaupi, stærri íbúð stærra hús stærri bíl klæðast ekki fötum nema þau séu sérstök merki.Það þykir kannski hallærislegt að vera í vinnu sem ekki er hálauna starf.Það getur verið að allt þetta sé hallærislegt og það verður þá bara að vera svo.

Það sem mér finnst HALLÆRISLEGT er að þessir útrásavíkingar hverjir sem þeir nú eru, skuli ekki hafa verið klárari en svo að þeir komu heilli þjóð á hausinn,eru það kannski þeir sem eru með tómann hausinn,því  ekki  er hann tómur hjá okkur  sem eigum að borga skuldirnar fyrir þá.

 

 


mbl.is Fyrirtæki þrifust á blekkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Hver vill ekki kraftaverk núna ?

Anna Ragna Alexandersdóttir, 18.12.2008 kl. 09:54

2 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Óregla í stjórnkerfinu, þessi þróun hefur verið að gerjast.

Sólveig Hannesdóttir, 19.12.2008 kl. 15:34

3 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Nú stöndum við upp og viljum réttlæti á Íslandi.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 19.12.2008 kl. 18:14

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Satt segirðu María,!!!!þetta er ekki ástand sem við kusum okkur,en verðum öll að borga og börnin og barnabörnin!!! en það eru að koma jól og við verðum að virða jólahátíðna/Gleðileg Jol og kveðjur  til þinna/bloggvinur Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 21.12.2008 kl. 14:41

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Innlitskvitt

Magnús Paul Korntop, 21.12.2008 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband