Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

15 veitingastaðir opnir á morgun gamlársdag...

Vitið þið að það eru um 63 veitingastaðir í Reykjavík og á morgun gamlársdag verða 15 staðir opnir og af þessum 15 eru  5 hótel sem hafa opið.

Við viljum fá erlenda ferðamenn til landsins,en viljum við að þeir svelti það var ekki svo langt frá því um jólin.Það er ekki nóg að fá ferðamenn til landsins við verðu að vera tilbúin til að taka á móti þeim.Eða viljum við í raun fá þá,því ef svo er þá þurfum við að bæta þjónustuna hjá okkur.

Nú um þessar mundir eru nær öll hótel í bænum sneisafullur af ferðamönnum,sem er hið besta mál því þeir koma svo sannarlega með gjaldeyrir til okkar,og ekki viljum við vera án gjaldeyris,en til að fá gjaldeyrir þurfum við að sýna  meiri þjónustulund.


Gleðileg jól til ykkar sem ekki eru bloggvini mínir...

Kæru bloggarar, mínar bestu óskir um friðsæla jólahátíð og farsæld á komandi ári,þakka fyrir bloggárið sem er að líða.   Jólakveðjur  María Anna


Þetta kemur í raun ekkert á óvart.

Fólk eins og ég sem hugsar í þúsundköllum ekki í milljónum eins og útrásarvíkingarnir gerðu,höfum vitað að spilaborgin myndi hrynja og fylliríið taka enda,það var bara spurning um tíma.

Ef við hefðum verið með góða viðskiptafræðinga eða hagfræðinga í frammlínu bannkana  væri staðan eflaust önnur í dag.En í staðin  höfum við verið með unga framagosa með hangandi $ merki á nefinu á sér, og sem kunnu ekki fótum sínum forræði.

Allt þetta bruðl sem hefur viðgengist hjá vissum hóp landsmanna,á ekki við hér á Íslandi,við erum bara venjuleg þjóð nýstigin uppúr torfbæjum,vinnuþjóð  sem hefur verið nokkuð sátt við lífernið hér á klakanum.

Það er kannski hallærislegt að vilja eiga gott og venjulegt líf,eiga sitt fallega og notalega heimili (hvort sem er í blokk eða einbýli), bíl  og utanlandsferð öðru hvoru,það þykir kannski hallærislegt að vera ekki í gæðakapphlaupi, stærri íbúð stærra hús stærri bíl klæðast ekki fötum nema þau séu sérstök merki.Það þykir kannski hallærislegt að vera í vinnu sem ekki er hálauna starf.Það getur verið að allt þetta sé hallærislegt og það verður þá bara að vera svo.

Það sem mér finnst HALLÆRISLEGT er að þessir útrásavíkingar hverjir sem þeir nú eru, skuli ekki hafa verið klárari en svo að þeir komu heilli þjóð á hausinn,eru það kannski þeir sem eru með tómann hausinn,því  ekki  er hann tómur hjá okkur  sem eigum að borga skuldirnar fyrir þá.

 

 


mbl.is Fyrirtæki þrifust á blekkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með hverjum ætlar Samfylking að mynda stjórn ef til þess kæmi ???

Mér finnst þetta lykta af umræðum Samfylkingar og Vinstri Grænna,því varla fer Samfylking að að dansa með Framsókn,því sá dans yrði taktlaus,enda er Framsókn deyjandi flokkur.En Vinstri Grænir eru nógu taktfastir til vinstri og hægri, þeir dansa með eins og þeim hentar,ef þeir komast í ríkistjórn með lofyrði um aðildarumræðu í Evrópusambandið þá gera þeir það.
mbl.is Ummæli Ingibjargar hafa ekki áhrif á landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástkær sambýlis maður minn á Litla Hrauni...

Er þetta nú ekki toppurinn,það eru fleiri en útrásar víkingarnir sem eru siðlausir,fangar á Litla Hrauni eyða tíma sínum í að finna út hvernig þeir geta svikið út peninga frá saklausum borgurum.Ég held að blessaðir mennirnir ættu að reyna að eyða tímanum í eitthvað betra,t.d. að byggja sjálfa sig upp,reyna að læra eitthvað og undirbúa sig þegar þeir koma út á götuna aftur.Þeir geta ekki verið svo vitlausir að ætla sér að lifa eins og kóngar í nokkra daga með peningum sem þeir ætluðu sér að svíkja út,því það er skammgóður vermir. 


mbl.is Auglýsti andlát samfanga síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáið tvíburana hans Ricki Martin...

First Photo of Ricky Martin's Twins!  Ricki Martin er búinn að eignast tvíbura,þessi fræga popp goðsögn eignaðist tvíburna án þess að koma nálægt kvenmanni,hann fékk sér leigumóðir til að uppfylla hans æðstu ósk,hann er kampa kátur og ánægður með synina sem eru stór myndarlegir og ekki ólíkir pabbanum.Til hamingju...

Hver og einn er sjálfráður.

Já hver og einn er sjálfráður en ekki má gleyma því að kjósendur hafa sitt að segja þegar kemur að kosningum,ekki veit ég hvernig Davíð kæmi út úr því dæmi ?
mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband