Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nú er ég aldeilis hlessa !!!

Eru  VR menn með á nótunum ?Ég bara spyr..Ég held að þeir sem stjórna launakröfum félagsmann ættu að athuga ýmsar greinar inna VR, t.d. þá sem vinna  með ferðamönnum, ekki erum við hátt skrifuð hjá VR það er eitt sem víst er.Shocking
mbl.is Ánægðir VR-félagar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óshlíðargöng..

Bolvíkingar og Ísfirðingar til hamingju með Óshlíðargöng!!!


mbl.is Bolungarvíkurgöng lokuðust í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum vinaþjóðir og þetta mál skiptir engu í því sambandi!

Danir né aðrir eiga að gera stórmál úr einhverju sem ekki skiptir neinu máli,þó að til séu einstaklingar í Færeyjum sem ekki vilja snæða kvöldverð með Jóhönnu og hennar kvinnu það er bara þeirra mál,látum hér við standa.Whistling
mbl.is Danir blása Jenis-málið út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Svona er lífið vinur"

Móðir mín gaukaði að mér smá vísu sem hún hafið fengið í hendurnar og er eftir konu sem fæddist 1876 og heitir Guðríður Guðlaugsdóttir.Kona þessi var spurð hvernig henni litist á lífið og afkomuna,þetta var í kringum 1970, gamla konan svara á þessa leið :

              Öllu er sóað, ekkert hik

              af ótta þjóðin stynur.

              Allstaðar eru svindl og svik

              Svona er lífið vinur!

Ekki er hægt að segja annað en að þessi vísa eigi við í dag,þar sem þjóðin er á barmi örvæntingar og rammvillt.Í fjölmiðla koma hinir og þessir sérfræðingar að segja okkur hvað við eigum að gera,aðrir skrifa greinar.Eitt er víst að allir hafa skoðanir,og allir halda sig  hafa réttar skoðanir,einn segir þetta og annar segir hitt.Hverju eigum við að trúa og hverjum? ekki veit ég það. Eitt veit ég með vissu,það er að hinn almenni borgari er orðinn þreyttur, ringlaður og vonsvikin.Að þessi hræsni,sviksemi og prettir skuli viðgangast hér á þessu litla landi,Íslandi.

 

             

 

 

             


Grafalvarlegt mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Þegar 10%sjálfstæðismanna ætla að skila auðu á þetta að segja flokksforustunni að eitthvað er meira en lítið að hjá flokknum.Strax eftir kosningar ætti Sjálfstæðisflokkurinn að leggja áherslu á naflaskoðun,því ef það er ekki gert þá verður flokkurinn bara lítið afl í þjóðfélaginu.Ef ég ætti að ráða heilt þá mundi ég segja við forustuna,reynið að nálgast fólkið í landinu og setjið  ykkur í spor þeirra sem eru að missa atvinnu og missa heimili sín og jafnvel að flytjast úr landi,fjölskyldur eru að splundrast, það er ekki það sem við viljum er það?


mbl.is Margir ætla að skila auðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum með hryðjuverkamenn hér á Íslandi.En það er ekki almenningur.

Ég er mest hissa á því að Bretar skuli ekki senda Scotland Yard á þessa hryðjuverkamenn sem eru hér á landi,því það er ekki almenningur ,þetta eru aðeins nokkrir menn og konur.Bretar sögðu að peningar hefðu verið fluttir frá Bretlandi til Íslands.en það er örugglega ekki rétt,peningarnir hafa  ekki komið til Íslands,þessir peningar liggja í ýmsum lúxus á hinum og þessum eyjum úti í heimi,á meðan við Íslendingar blæðum fyrir þessar gjörðir.


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingseta virðist vera vinsæl og þaulsetin.

Það væri óskandi að önnur störf hér í þjóðfélaginu hefðu sömu starfsreynslu og þeir sem sitja á þingi,því það er alveg sama hvaða stjórn er skipuð alltaf eru 3-4 ráðherrar og ráðfreyjur sem hafa setið í stjórn áður með mismunandi flokkum.Nú er verið að mynda stjórn með fólki sem var í stjórn fyrir 20 árum síðan, nú spyr ég hefur stefnubreyting þessa hóps breyst? eru þau ekki með sömu hugmyndir og fyrir 20 árum síðan? 
mbl.is Nýtt verk, sömu leikarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er best að leggjast á bæn...

Samkvæmt því sem Steingrímur hefur látið frá sér vill hann helst skila láninu frá AGS,eru þetta þær hugmyndir sem VG ætla inn í ríkisstjórn loksins þegar þeir fá tækifæri til ríkistjórnar setu, það er ekki nóg að mótmæla þeir verða að koma með úrlausnir. Tækifærið er ykkar þið eruð búnir að bíða eftir þessu í langan tíma.
mbl.is Munu leita eftir endurskoðun á IMF-samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt mál..tökum afstöðu undir nafni ...

Þetta finnst mér alveg sjálfsagt og eðlileg ritskoðun frá hendi MBL.Við bloggarar erum að gera athugasemdir og lýsa okkar áliti á fréttum Morgunblaðsins og vissulega eigum við að bera ábyrgð á eigin skrifum,okkur er gefið tækifæri til að láta skoðun okkar í ljós og mér finnst sjálfsagt að nýta sér þetta tækifæri undir nafni..Mér hefur fundist of mikið um að bloggarar skrifi undir nafnleynd og skil í raun ekki ástæðuna.Er ekki best að vera stoltur af því sem maður skrifar hve vel eða illa sem það er gert,of ef einhver nennir að lesa það sem maður skrifar þá er það mjög gott.


mbl.is Fréttablogg og nafnleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól til ykkar sem ekki eru bloggvini mínir...

Kæru bloggarar, mínar bestu óskir um friðsæla jólahátíð og farsæld á komandi ári,þakka fyrir bloggárið sem er að líða.   Jólakveðjur  María Anna


Næsta síða »

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband