Er einhver hissa á því !

Þegar sápukúlur eru blásnar upp þá springa þær fljótlega,er það ekki það sem er að gerast núna í Íslensku þjóðfélagi.Margar sápukúlur hafa verið blásnar upp síðastiðin ár,og nú eru þær að springa.

Þær haf ekki verið blásnar upp með öryggi til þess að gera gott fyrir þjóðfélagið í heild,aðeins fyrir nokkra einstaklinga og það gengur ekki til lengdar.

Ég er svo gamaldags í hugsun,ég hef alltaf haldið að þegar við fjárfestum í einhverju þá þurfum við að eiga viss mikið að reiðufé til að leggja fram síðan gera áætlun hve mikið við getum greitt á mánuði til að gera raunhæfa fjárfestingu.Ég held að ekki fari vel að fjárfesta eingöngu með lánsfé,þá springur sápukúlan.


mbl.is Hafa misst trúna á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Við þessu mátti búast. Það er eintóm sjálfsblekking að við séum (önnur) ríkasta þjóð í heimi. Skuldsettasta þjóð í vestrænum heimi væri nær lagi.

Ég bendi á bakþanka Davíðs Þórs Jónssonar, þess vísa manns,  aftan á Fréttablaðinu í gær, 25. nóvember: Hvílíkt lán.

Þar kemur meðal annars fram hvað Svíar telja vera muninn á sér og Íslendingum:

" Ef Svíi vinnur milljón í happadrætti fer hann með hana í bankann, leggur helminginn inn og kaupir bíl fyrir hinn helminginn. Ef Íslendingur vinnur milljón í happadrætti fer hann með hana í bankann, fær lánaða aðra milljón og kaupir sér bíl fyrir tvær milljónir."

 Það sorglega er að íslenskir bankar ýta undir þennan hugsunarhátt, þar sem þeir sem eiga mesta peninga fá hæstu lánin, meðan þeir sem minna eiga og mest þyrftu á hagstæðum lánum að halda þurfa að taka þau með ofurkostum eða hreinlega fá neitun.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.11.2007 kl. 12:53

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

nei eg er ekki hissa,þetta er allt komið úr böndum,og við sem höfum lifað tímana tvenna erum hrædd/ kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.11.2007 kl. 13:02

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hugboðið sem ég fékk inni í Kringlu þegar ég var þar um daginn að versla var þannig: Þetta verður ekki alltaf svona, við eigum eftir að verða fátæk. Frekar uggvænlegt  - - vonandi bara mitt fjöruga ímyndunarafl en ekki sannleikur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.11.2007 kl. 13:10

4 Smámynd: Alfreð Símonarson

Manstu eftir íslensku erfðagreiningu? Þegar viðskiftafræðingar mæta í sjónvarpið til að kynna sauðsvarta almúganum hve hagstætt og sniðug ÍE sé.  Kaupið núna og ekki dragast afturúr og svo framvegis..  Ekki treysta á neitt sem þessir "viðskiftaráðgjafar" (ég vill kalla þá blóðsugur) segja enda eru þeir að hugsa um sína hagsmuni, jafnvel þó að það þíði að hagsmunir þeirra sem taka þátt séu ekki upp á marga fiska og fólk jafnvel verði gjaldþrota. Hvað þurfa þessir andskotar að svíkja okkur oft þar til við föttum að það er verið að svíkja okkur?

En fáum við opinbera umræðu, nei, það má ekki hrófla við gömlu peningunum og bankakerfinu.

Meira um heimildir : http://malacai.blog.is/blog/malacai/entry/368120/

Kær kveðja Alli. 

Alfreð Símonarson, 26.11.2007 kl. 17:07

5 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Gréta Björg gott dæmi sem þú tekur þarna um Svíann.

Já Halli,tímarnir hafa svo sannarlega breyst,það er meiri stéttarskipting í dag en hér áður fyrr.

Alfreð,ég man svo sannarlega eftir Íslenskri erfðargreiningu,ég man að allir hlupu til að kaupa hlutabréf,í sumum tilfellum voru íbúðir settar í veð, og allt tapaðist,það er hræðilegt.

María Anna P Kristjánsdóttir, 26.11.2007 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband