Svona á að taka á málunum !

Þetta er nákvæmlega í anda þess ég ég vil,láta óprúttna unglinga hreinsa upp eftir sig.Ég held að þetta sé eina leiðin til að þeir hætti skemmdarstarfsemi í borginni,bara láta þá hreinsa nógu mikið á öllum tímum,þetta væri  þá þeirra leið til að greiða fyrir skemmdarverkin.Að láta óharðnaða unglinga í fangelsi eða á upptökuheimili getur varla verið til góðs.Það þarf að fara aðrar leiðir,til að koma þeim í skilning um hvað bíður þeirra ef þau halda áfram á þessari braut.

Enginn unglingur er alslæmur,það leynis alltaf eitthvað gott í hverjum unglingi,það þarf bara að grafa aðeins dýpra hjá sumum til að finna hið góða,en með góðri aðferð þá tekst það.Það er allavega mín skoðun.


mbl.is Gert að hreinsa upp glerbrotin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Hjartanlega sammála þér  María.

Þorkell Sigurjónsson, 28.11.2007 kl. 15:16

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hið besta mál, lögreglan er á réttri leið þarna, svona á að taka á þessu. Það væri upplagt að þeir létu unglingana líka mála sjálfa yfir veggjakrotið, þó það kosti sjálfsagt aðeins meira umstang. - Ansi má snjókúlan hafa verið hörð til að brjóta framrúðu í bíl, þetta er sko ekkert grín...

Greta Björg Úlfsdóttir, 28.11.2007 kl. 15:39

3 Smámynd: Kristján Magnús Arason

Já, alveg sammála María Anna.  Langbest að láta þá bara bæta fyrir verkin með því að hreinsa til og þá er málið úr sögunni.

Kristján Magnús Arason, 28.11.2007 kl. 15:58

4 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Takk fyrir athugasemdirnar,ég vil bara að þeir hreinsi eftir sig,hvort sem það er að þvo veggi,mála sópa upp gler,alveg sama,láta unglingana sjá um þetta,og eins og Kristján Magnús segir þá er málið úr sögunni.

María Anna P Kristjánsdóttir, 28.11.2007 kl. 16:54

5 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl María.

Tek undir með öllum sem skrifa sitt álit. Þetta er nefnilega rétt hjá lögreglunni að láta menn þrífa eftir sig. Enn fremur tek ég undir með þér María það er engin lausn að senda ungt fólk í fangelsi. Síðan er þetta veggjakrot sem verður að stöðva sem fyrst og skemmdaverk.

Jóhann Páll Símonarson

Jóhann Páll Símonarson, 28.11.2007 kl. 20:03

6 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Satt segir þú Guðmundur,þeir áttu að þrífa miklu meira en þetta,en þetta er byrjunin,vonandi er þetta stefnan sem lögreglan vill taka.

Jóhann Páll,veggjakrotið er skemmdaverk sem á að stöðva,fráfarandi borgarstjóri hafði miklar áhyggjur af þessu og reyndi að spyrna við þessu.

María Anna P Kristjánsdóttir, 29.11.2007 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband