Er einhver einhliða ástæða fyrir þessu ?

Þar sem ég vinn með ferðamönnum,þá gefur það auga leið að ég tala mikið við þá um daginn og veginn og álit þeirra á Íslandi.Lítið nefna þeir stóriðjur og eyðileggingu á landslagi,en það sem virkilega liggur þeim á hjarta er dýrtíðin hér,og þá sérstaklega hvað varðar mat.

Þeir koma móðir,másandi og æstir eftir eina kvöldmáltíð sennilega síðustu kvöldmátíðina á Íslandi því eftir þetta taka samlokur við.

Ferðamennirnir eiga bara ekki orð,þeir segja við mig að þeir hafi borgað nær 8000.- kr fyrir einn rétt og eitt glas af víni stundum er þetta dýrara.Þetta held ég að fari mjög svo fyrir brjóstið á ferðamönnunum okkar,það vantar ekki að þeir eru hrifnir af landinu segja það stórbrotið.Þjónustan mjög góð og gisting líka en dýrtíðin gerir það að verkum að þeir hugsa sig tvisvar um,þegar þeir eru spurðir hvort þeir muni koma aftur.

Þetta er nokkuð sem við verðum að taka til athugunar ef við viljum vera samkeppnishæf á alþjóða markið hvað verðar ferðamenn.


mbl.is Ísland fellur um sjö sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Í gegnum árin hef ég unnið á veitingahúsum og hugsa oft til þess þegar ferðafólk er að panta af matseðli og borga þvílíka upphæð fyrir mat og drykk.Svo eru líka þeir sem koma í hópum og fá sérstaka rétti og drykki með og það kostar líka mikið.Ef við værum að borga svona mikið í útlöndum þá færi fólk í færri ferðir.Við hjónin vorumá Spáni í viku í febrúar borðuðum á hverju kvöldi á góðum stöðum og borguðum ca. 50 evrur fyrir okkur bæði það er ekki dýrt og við hefðum getað haft það ódýrara.

Guðjón H Finnbogason, 4.3.2008 kl. 15:55

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Ég held að það þurfi fleiri veitingastaði sem bjóða uppá venjulegan heimilismat,sem er þá ódýrari en það sem boðið er uppá í dag.

Þú hlýtur þekkja þetta vel Guðjón þar sem þú ert í þessum bransa.

María Anna P Kristjánsdóttir, 4.3.2008 kl. 17:54

3 Smámynd: Sigursteinn Ingvar Rúnarsson

Ísland er fokdýrt en það verður þó að segjast, þar sem þú nefnir Spán, að það ágæta land hækkar nú bara og hækkar. Ótrúlegt hve verðlagið hefur hækkað mikið núna á síðustu 5 árum hérna á Spáni. Sumir hlutir eru orðnir jafnvel dýrari heldur á Íslandi. Ég man fyrir upptöku evrunar þá var allt ca. helmingi ódýrara. Þó það sé kannski ekki alveg sambærilegt þá borgaði ég t.d. 235€ fyrir rafmagn í 2 mánuði.

En nota bene, launin haldast ennþá jafnlá.

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, 5.3.2008 kl. 06:55

4 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Við verðum að koma upp einhverjum matsölustöðum, þar sem ferðamenn þurfa ekki að greiða fyrir einhverja uppsnobbaða þjónustu, sem þeir kæra sig alls ekkert um.  Ég vil endilega trúa því að ferðamenn í okkar landi eru ekki hingað komnir til að láta einhverja snúast í kringum sig í einhverri tilgerð.  Bjóðum upp á eitthvað eðlilegt, etthvað svona naturelt án þess að vera myglað..............................

Sólveig Hannesdóttir, 6.3.2008 kl. 23:39

5 Smámynd: Axel Guðmundsson

Ég var með nokkra breta á ferðalagi og gistum við á sveitahóteli. gamlan breta langaði í bjór og fór á barinn og borgaði 800 kr fyrir stóran. Horfði á glasið smá stund og spurði þjóninn er ég búinn að borga fyrir kvöldið?

Axel Guðmundsson, 8.3.2008 kl. 22:58

6 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Sólveig,það er alveg rétt hjá þér ferðamennirnir okkar yfir höfuðið vilja ekki uppsnobbaða matsölustaði,bara góðan mat,  Sægreifinn  er mjög vinsæll.

Axel,800 kr fyrir eitt kvöld er kannski dálítið ýkt en ég sé tárin fyrir mér á þessum Breta.

María Anna P Kristjánsdóttir, 9.3.2008 kl. 10:05

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jú auðvitað er ástæða fyrir þessu,það er um 30-40 5 allt dýrara hérna en erlendis/erum við ekki sjálf alltaf að kvarta/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 10.3.2008 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband