Misjöfn eru gæði heims.

Það er hræðilegt að vita til þess að fólk skuli þurf að leggja á sig ferðalag í lokuðum flutningsbílum og ferðast sem dýr,til að leita eftir betri lífsgæðum fyrir sig og sína.Þetta gerist ekki bara í Asíu og Afríkulöndum,þetta er líka að gerast hér í Evrópu.

Fólki er smyglað til landa þar sem lífgæðin eru betri.Þetta vesalings fólk halda sig vera að öðlast hamingju í lífsgæðum,en oft á tíðum lenda þau í höndum manna sem nota vinnukraft þeirra á öllum sviðum,svo ég tali ekki um ungar stúlkur sem neyddar eru í vændissölu.Húsnæðið sem þetta fólk býr í er oft á tíðum ekki dýrum bjóðandi.Það er svo illa sett að það hefur ekki efni á að snúa aftur til síns heimalands.

Misjöfn eru gæði heims á meðan við sem höfum aðeins meira á milli handana erum aldrei fullkomlega sátt við það sem við höfum,við þurfum alltaf meir og meir, og breyta og bæta.


mbl.is Tugir köfnuðu í gámi í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Tek undir þetta María mín.

Sólveig Hannesdóttir, 10.4.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Bara á Spáni deyja þúsundir árlega,þegar þeir eru að reyna að komast yfir Gíbraltar sund frá Afríku,það er hræðilegt.Ég fylgist með þessu í Spænsku fréttunum og þar eru heilu fjölskyldurnar sem deyja.

María Anna P Kristjánsdóttir, 10.4.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hræðilegt! Gæðum lífsins er mjög misskipt um heiminn. Skyldum við einhvern tíma ná betri jöfnuði ? ..... Er enginn í þessum löndum þaðan sem fólk flýr, sem segir frá hvað hefur komið fyrir? Ætli fréttirnar nái aldrei þangað... sennilega ekki.

Ragnhildur Jónsdóttir, 11.4.2008 kl. 13:26

4 Smámynd: Kristveig Björnsdóttir

Tek undir þetta.  Alveg hryllilegt.  Sama saga með fólkið sem er að koma í gegnum Mexico hingað upp til Ameríku í von um betra líf.  Ótrúlegar sumar sögurnar.   Sammála því líka sem Guðmundur segir að það eru ekki nema örfá dæmi sem komast í fréttirnar.  Svo er líka mikið um spillingu í þessum löndum og yfirvöld jafnvel að hylma yfir glæpum og slíku.  Hryllilega ósanngjarnt svona misrétti. 

Kristveig Björnsdóttir, 11.4.2008 kl. 19:06

5 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Þetta er svakalegt að hugsa sér hvað við getum gert mikið Íslendingar sem aldrei erum ánægð,kaupum jafnvel föt á ungbörn eins og gallabuxur á 15000og pils fyrir stúlkur á svipaðan pening,en þetta er bara smá sýn við hendum miklu líka og förum illa með.

Guðjón H Finnbogason, 13.4.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Nei Ragga,betri jöfnun næst örugglega aldrei.

Þetta hlýtur að vera eitthvað svipað á landamærum Ameríku,þar er örugglega margt sem gerist.

Ég var alveg agndofa þegar ég heyrði þessa frétt um barnafötin,ég tími varla að kaupa á mig pils sem kostar 15000.- kr, hvað þá á ungabarn,hvað segir þetta okkur,erum við að ala börnin upp í réttu hugsunarfari.

María Anna P Kristjánsdóttir, 14.4.2008 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband