Af hverju á hinn almenni skattborgari að greiða fyrir þetta ?

Ég spyr,af hverju á ég að greiða fyrir fangavist erlendra fanga hér á landi? Ég borga mína skatta og skuldir og mér finnst allt í lagi að greiða fyrir fangavist íslenskra ríkisborgara og til að hjálpa þeim að bæta ráð sitt, en þegar mínir skattpeningar fara í að halda uppi fangelsum fyrir glæpagengi sem kemur hingað til lands í þeim tilgangi að ræna rupla og selja eiturlyf,þá segi ég hingað og ekki lengra. Það á að senda þetta lið heim til sín og láta þá afplána  sína dóma  í sínu heimalandi.
mbl.is Gæslufangar flestir erlendir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

auðvitað stendur þér ekki á sama hvort peningurinn sem þú hefur unnið hörðum höndum fari í það að halda uppi íslenskum afbrotamönnum hvað þá erlendum lýð. Við tökum öll ákvarðanir sem geta breytt lífi okkar og farvegi á betri eða verri veg og ég sé ekki að við eigum að þurfa að borga brúsann fyrir  þá sem hafa valið það að níðast á öðrum.

Íslendingar mega vara sig á hverjum þeir hleypa inn í landið hvort sem þetta fólk kemur inn í landið í leit að atvinnu eða sem "flóttamenn" Við erum heppin að búa ekki við "opin landamæri" og ættum því að eiga nokkuð auðvelt með að gera "back ground check" á innflytjendum.  

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 25.9.2008 kl. 13:07

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Takk  Erna fyrir athugasemdina,en þegar ég segi að það sé í lagi að greiða fyrir Íslenska fanga þá er ég ekki að mæla með ofbeldi það er langt í frá ,ég vil heldur nota þessa peninga til að byggja íslenska ofbeldismenn upp til að þeir reyni að bæta ráð sitt,en vil alls ekki nota þessa peninga í erlenda ofbeldismenn.

María Anna P Kristjánsdóttir, 25.9.2008 kl. 14:58

3 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

'Eg skil hvað þú átt við en nú spyr ég þig til baka, bæta þessir menn ráð sitt eins og þú vonast til af þeim?

Ég er svo hjartanlega sammála þér og finnst það mikið óréttlæti að við skulum vera að borga fyrir erlenda óþokka sem sitja í lúxus fangelsis herbergum þvi varla er hægt að kalla þetta klefa. 6 af hverjum 10 sem dvelja í íslenskum fangelsum eru erlendir afbrotamenn. Skárra að sitja í íslensku fangelsi heldur en að vera heimilislaus.

Ég sá einu sinni mynd af íslenskum "fangaklefa" sem var ekkert ósvipaður herbergi í heimavist í háskólum hér ytra. Þetta borgum við fyrir

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 25.9.2008 kl. 15:50

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvitt og sammála þessu/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 25.9.2008 kl. 22:26

5 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Erna,ég veit ekki hvort þeir bæta ráð sitt,en gott væri ef svo væri.Ég er líka sammála,fyrir suma er fangelsisvist húsaskjól og matur og við borgum fyrir það.

María Anna P Kristjánsdóttir, 26.9.2008 kl. 10:23

6 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Kvitt og sammála þér. Við verðum að fara hafa skýrari línur í þessum málum. ´Þetta er frekar léleg auglýsing, við gætum farið að fá inn í landið einstaklinga sem kæmu til þess eins að bófast hér, vegna okkar mildu aðferðum.

Sólveig Hannesdóttir, 26.9.2008 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband