Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Ég fæ gæsahúð,sorgarsaga.

Í raun er ekki hægt að segja neitt,þetta er svo sorglegt,ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvernig barninu hefur liðið og dáið í frystinum.Aumingja konan að taka svona ákvörðun,hennar líf verður ekki það sama á eftir,þetta eru þung byrði sem hún þarf að bera.
mbl.is Setti nýfætt barn sitt í frysti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG hvað með það ???

Verður Obama betri frambjóðandi fyrir bragðið,ömmubróðir hans,þetta er nú dálítið langt gengið.Ég held að langalangafi minn hafi verið prestur fyrir vestan,hvað gerir það mig,kannski er ég með geislabaug.
mbl.is Obama gerði mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamt fólk,flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.

Þetta er ekkert einkamál okkar Reykvíkinga,þegar svona mannvirki eru byggð   þau  eru fyrir alla landamenn,og ekki síst fyrir landsbyggðabúa.

Ég sé framtíðina fyrir mér með nýrri  samgöngumiðstöð þeim megin sem Loftleiðir er,þar verður hægt að tékka sig inn í flug,og taka rútu frá miðstöðinni út á landsbyggðina og á Hótelin í Reykjavík.Vitið þið að það er ekki boðið uppá rútuþjónustu  á Hótelin,hvorki frá flugvellinum né til,viðkomandi verður að taka leigubíl,strætó eða ganga,þetta er þjónustuleysi .

Með frekari uppbyggingu samgöngumiðstöðvar Loftleiða megin,þá munum við auka við störf í ferðaþjónustu,en með flutning vallarins til Keflavíkur munum við fækka störfum svo um munar.Ég ætla ekki að telja upp öll þau störf sem eru í hættu ef hann verður fluttur,ég hef talið þau upp svo oft áður, en þetta þarf að hafa í huga þegar rætt er um flutning vallarins til Keflavíkur,það vill enginn missa vinnu,Keflavík er góður staður og gott fólk sem þar býr,en ég sé enga ástæðu til að færa þeim störfin okkar á silfurfati.

 


mbl.is Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst sendum við laglaust lið,sem ekki heldur tóni né takti.

Friðrik Ómar og Regína stóðu sig frábærlega vel,til hamingju.En,þetta stóra EN,það virðist vera sama hve vel sungið er og hve gott atriðið er það dugar ekki.Það dugar heldur ekki að skipta keppninni í þrjá hluta,því þegar kemur að því að kjósa í loka keppninni, þá kjósa allar þjóðir og sama rullan heldur áfram.

Ég hafði gaman af því að fylgjast með Spánska sjónvarpinu eftir keppnina,þeir voru ánægðir með sinn hlut,en þulurinn sem hefur verið sá sami í ein 40 ár sagði fyrir keppnina að Rússland,eða Grikkland myndu vinna og hann var sannspár,og hann sagði þetta ekki vegna gæði laganna,heldur vegna þess að þessi lönd hafa verið í efstu sætunum undanfarin ár og tími væri komin á þau að vinna.Það vildi hann meina að þetta væri bara pólitík.

Þetta var frábær skemmtun,og þegar kom að kosningu þá hafði ég mest gaman af Sigmari,hann var alveg pottþéttur með hverja einustu  stigagjöf,hann vissi uppá hár hvað hvert landi myndi gefa,og hvað segir það okkur,jú það er hin eina stóra spurning ???

 

 


mbl.is Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er bara að setja sig í Eurovision stellingar,áfram Friðrik og Regína !!!

Ef Friðrik og Regína standa sig jafn vel og þau gerðu á fimmtudagskvöld,þá erum við örugg í  einum af efstu sætunum.Þau fluttu sitt lag gífurlega vel. Áberandi var hve róleg og yfirveguð þau voru,enginn taugastrekkingur,það geislaði af þeim ánægja yfir því að vera á sviðinu,og það hefur örugglega hjálpað þeim.Þau eru sannir atvinnumenn bæði tvö.

Það sem mér finnst gaman af er hve mörg lönd eru með þjóðlegt,og syngja í sínu tungumáli.Portúgal er mitt uppáhald fyrir utan Ísland,Frakkland er með gott lag og gömlu karlarnir frá Króatíu held ég.En mér finnst að hvert land ætti að syngja á sínu tungumáli,þá fær maður betur að kynnast landi og þjóð.

Ég hlustaði á Andreu og Pál Óskar í gær í útvarpinu,þar fóru þau inná hve margir gera grín af þessari keppni.Ég get ekki skilið þegar fólk leyfir sér að gera grín,ekki er gert grín af fótboltakeppni,eða handboltakeppni,danskeppni eða hvaða keppni sem er.Í lít á slík grín sem hreina og beina móðgun við listamennina,við megum ekki gleyma því að þetta eru yfirleitt atvinnu söngvarar sem leggja dag og nótt til að gera vel,sumum tekst vel upp öðrum ekki,en það er ekkert til að gera grín af.Ég t.d. horfði á sænska sjónvarpð  þar sem Sænskir spekingar voru að dæma lögin í keppninni,þegar þeir horfðu á Portúgalska lagið þá hlógu þau allan tímann,þvílík vanvirðing við söngkonuna,og þekkingarleysi,svona á enginn að leyfa sér og alls ekki í sjónvarpi.Áfram Íslandi.


mbl.is „Fegin að Dustin datt út"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmt mál fyrir Barcelóna.

Satt er það að rignt hefur mjög lítið á Spáni þetta árið,svo ástandið er mjög slæmt á mörgum stöðum.Þetta kennir manni að við lifum við forréttindi hér á Íslandi,eitthvað sem okkur finnst vera sjálfsagt mál.Hvenær dettur okkur í hug að við þurfum að spara vatnið,láta ekki renna endalaust ég er hrædd um að sú hugsun sé sjaldgæf hér á landi.Börnin á Spáni eru alin upp við það að láta vatnið ekki renna stöðugt þegar þau þvo sér eða bursta í sér tennurnar,og þegar við dveljumst á hóteli þar í landi þá er beiðni frá stjórnendum að spara vatnið.

Ég man eftir því þegar við vorum að vinna sem farastjórar í Benidorm,í kringum 1976-1979 þá var ástandið mjög slæmt,það var einfaldlega rennandi hreinsaður sjór í krönunum,og ég man eftir vatnsbílunum sem komu á hverjum degi á hótelin,það var hræðilegt ástandi,eftir að ég hætti að vinna í Benidorm þá kom ég þar ekki í 20 ár,ég var búin að fá mig kokfulla af vandræðum. Farþegarnir veiktust í hrönnum ég held að læknarnir hafi aldrei lent í öðru eins ástandi.Á eftir sturtu þá kom maður hvítari en eftir heilan vetur á íslandi,það var svo mikið salt í vatninu,ekkert skrítið hreinsaður sjór.

Ég hef lært að hugsa sem Spánverji hvað varðar vatnið,ég reyni að spara það,og núna er aðalferðamanna tíminn byrjaður,ég bara vona að við íslendingar spörum vatnið fyrir Spánverja á meðan við erum gestir í þeirra landi,og muna að kaupa vatn í brúsum fyrir kaffið.

 


mbl.is Drykkjarvatn til Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhyggjur ekki að ástæðulausu.

Borgarstjórnarflokkurinn er í sárum og hefur verið plástraður saman,ég efast stórlega að plásturinn muni græða þessi sár,og það mun bitna á flokknum í heild þegar kemur að næstu kosningum.Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins er eins og höfuðlaus her,það veit enginn hver tekur við af Ólafi sem borgarstjóri það er eitt sem þarf að ákveða og það strax.

Ég er ekki viss um að það dugi að tala við grasrótina,þ.e.hverfafélögin, þau hafa ekkert vald til breytinga.Hugarfarsbreyting verður að gerast innann borgarstjórnarflokksins,og hann verður að sýna samstöðu og ekki bara í orði einnig í verki.

T.D: finnst mér skrítnir gjörningar í sambandi við flugvöllinn í Reykjavík,borgarstjóri vill hafa flugvöllinn áfram á meðan nokkrir í meirihlutanum vilja hann burt,væri ekki tími til kominn að sýna samstöðu í þessu máli og gefa skýrar yfirlýsingar annaðhvort af eða á,það væri byrjunin.


mbl.is Ástandið veldur sjálfstæðismönnum áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuðverkjatöflur og eina bók takk.

Svona er þetta líklegast í litlum þorpum.Ég veit um lítið þorp á Spáni þar sem apótekið var innan af barnum,einn bjór og svefnlyf takk.
mbl.is Íslenskar bækur í frönskum apótekum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir tímar hjá Bandaríkjamönnum ???

Ef svo verður raunin að Frú Clinton verði ekki útnefnd,þá má segja að nýir tímar séu að byrja ekki bara hjá Bandaríkjamönnum heldur heiminum öllum.Þetta veður mikill styrkleiki fyrir blökkumenn þar í landi,bilið á milli hvítra og blökkumanna er að styttast sem betur fer.Enda hefur maður séð að blökkumenn hafa gengt mörgum mjög mikilvægum embættum í gengum árin.En samt sem áður spyr maður sig hvort Bandaríkjaríkjamenn séu í raun tilbúnir,og ég vona svo sannarlega að hann verði ekki drepinn áður en til kosninga kemur.

 


mbl.is Búið spil fyrir Clinton?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættu bara að snúa til síns heima,það er enginn hörgull hér á landi.

Ef leitað er vel þá er enginn hörgull á þessari þjónustu hér á landi,því miður.Og það sem verst er, að innan um þessa flóru má finna allar tegundir af konum sem reyna að drýgja tekjur sínar á (auðveldan hátt) eða miklar tekjur á stuttum tíma.Flóran er sennilega margvísleg stúlkur í lyfjanotkun,stúlkur í framhaldsnámi og íslenskar húmæður.


mbl.is Til Íslands til að veita kynlífsþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband