Farin heim.!

Þá er McCann fjölskyldan farin heim í  raun skil ég ekki ástæðuna,kannski vegna þess að þau vilja vera heima hjá sér ef þau verða ákærð og taka út dóminn þar í bresku fangelsi,en við skulum vona að til þess komi ekki.Það hlýtur að gera rannsóknina erfiðari þar sem þau eru ekki til staðar.Mér hefur ekki líkað sú umræða sem  hefur verið í gangi, að Portúgalska lögreglan standi sig ekki,við megum ekki gleyma því að Breska lögreglan tekur líka þátt í rannsókninni,m.a. með rannsóknar hundum sem leituðu í íbúðinni eftir vísir af erfðarefnum.Þau gögn sem fundust voru send til Bretlands og rannsökuð þar.Svona neikvæð umræða,sem jafnvel birtis í blöðum erlendis og heyrist t.d. frá  fjölskyldu McCann er ekki af hinu góða,við getum ekki litið á svona rannsókn eins og við værum að horfa á Bandaríska bíómynd þar sem allt er svo létt og sökudólgur finnst á "no time".Það síðasta sem maður les er það að Portúgalska lögreglan hafi komið fyrir í íbúðinni og í bílnum þeim erfðarefnum sem fundist hefur,hvernig er hægt að saka lögregluna um slíkt,við sjáum þetta í sjónvarpsþáttum eins og Law and Order og öðrum slíkum þáttum en ekki í raunveruleikanum ég vil ekki trúa því.
mbl.is Foreldrar Madeleine á heimleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Það er kannski skiljanlegt að þau séu á heimleið en er það skynsamlegt?

Benedikt Halldórsson, 9.9.2007 kl. 11:37

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Ég hefði haldið að þau ættu að vera áfram í Portúgal,þar standa þau og falla í þessu máli.

María Anna P Kristjánsdóttir, 9.9.2007 kl. 11:40

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Það hefði sennilega verið skynsamlegra.  

Benedikt Halldórsson, 9.9.2007 kl. 12:03

4 identicon

Það er nú ansi mikið líklegra að lögreglan í portúgal hafi plantað sönnunargögnum til að losna úr þeirri vandræðalegu stöðu að finna ekki barnið og þar með tapa milljörðum í túsisma næstu árin heldur enn að foreldrar stúlkunnar hafi drepið hana. Lögreglan hefur þó ástæðu til að fremja slíkt afbrot enda er það alveg klassískt dæmi ..lögreglan er ekkert heilög ekki frekar en einhver annar en af hverju i óskopunum ættu foreldrarnir að gera svona það er nú ekki sjáanlegt á þessu stigi málsins..

Elín (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 12:37

5 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Elín; ég get ekki séð af hverju ferðamenn ættu ekki að fara til Portúgals,við þyftum þá að hætta að fara til fjölda landa þar sem börnum hafa verið rænt og ekki fundist.Nei lögreglan er ekkert heilög,það er satt en ég vil samt ekki trúa því að hún hafi komið sönnunargögnum fyrird,og vona enn að hjónin séu saklaus.

María Anna P Kristjánsdóttir, 9.9.2007 kl. 14:11

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já við vonum það  Maria,það er engin sekur fyrr en segt er sönnuð/Kveðja Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 9.9.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband