E þrengist að McCann hjónunum.!

Rannsóknin nálgast dag frá degi meira og meira McCann hjónin,nú er Portúgalska lögreglan búin að staðfesta að 99%líkur séu á því að erfðarefnin sem fundist höfðu í bílnum séu úr Madeleine litlu,og þetta var bílaleigubíll sem hjónin tóku á leigu 25 dögum eftir að barnið hvarf.Ennfremur telur Portúgalska lögreglan líkur á því að lík barnsins hafi verið í allt að 14 daga inni í íbúðinni þar sem fjölskyldan bjó í Algarve Portúgal,hvar hefur hún þá verið geymd.? McCann hjónin fóru frá Portúgal fyrir nokkrum dögum með þau einu skilyrði að þau létu vita af sér á 5 daga fresti,nú eru þau að leita sér að góðum lögfræðingi, og hafa þau leitað til Micael Caplan lögfræðings sem meðal annars varði einræðisherrann Agusto Pinochet árið 1999.Lögreglan í Portúgal neitar því ekki að möguleiki sé á samvinnu milli Bretlands og Portúgals,hvað varðar yfirheyrslum á McCann hjónunum.Þetta er hræðilegur harmleikur hvernig sem málið endar.En segjum svo að þau séu sek,sem ekki er svo ótrúlegt,hvernig hafa þau getað sem foreldrar verið svona köld ,þau hvorki blikna né fella tár í augsýn almennings.Hvernig hafa þau getað hrundið af stað öllu fjölmiðla fári,og söfnun,það er búið að safna fyrir milljónir og þekkt fólk um allan heim hefur tekið þátt í þessu með þeim,þau hafa farið til páfa og kysst á hendi hans.Þvílík hræsni ef þau eru sek og það þarf að hafa ískalt blóð og jafnvel frosið til að geta gert þetta.Það er einmitt þetta sem mér hefur fundist frá fyrsta degi skrítið,McCann hjónin eru svo köld að þau gætu verið marmarastyttur. 
mbl.is Portúgalska lögreglan segir DNA-sýni afdráttarlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hvernig er hægt að þekkja í sundur erfðaefni úr Madeleine og systkinum hennar, þegar ekki eru sýni úr henni til samanburðar? Eða voru þau kannski einhvers staðar til fyrir? Ég geri ráð fyrir að það hafi verið tekin sýni úr allri fjölskyldunni, sennilega þekkir löggan þetta sem sýni úr M. úr frá því, eða hvað?

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.9.2007 kl. 01:01

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Maður veit það ekki en lögreglan í Birmingham á Englandi rannsakaði þetta,eitt af því sem fundist hafði er hár og það hefur sennilega verið nóg.Það er eeki ósennilegt að sýni hafi verið tekið úr fjölskyldunni,ég veit það ekki.

María Anna P Kristjánsdóttir, 11.9.2007 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband