Jakkafata,dragta og annað vinnufólk ...

Ég hef verið að velta því fyrir mér,hvernig standi á því að þeir sem vinna í bönkum,kaupþingum og öðrum líkum stofnunum séu með þrefalt meiri laun en þeir sem eru að passa börn þeirra og okkar.Ég hefði haldið að börnin okkar væri það mikilvægasta og þau ættu skilið það allra besta sem hægt væri að útvega þeim, en svo virðist ekki vera fyrir ákveðinn hóp í þjóðfélaginu,og þá á ég við þá sem stjórna launamálum landsmanna.Ég á ekki orð,hvernig er þetta hægt að þeir sem passa peningana okkar séu með margfalt hærri laun en leikskólakennari,og grunnskólakennari.Svo er orðið í þessu og öðrum þjóðfélögum að við menntum okkur alltaf meir og meir og vitaskuld viljum við nota okkar menntun jafnt konur sem karlar,afleiðingin verður sú að börnin þurfa að vera lengri og lengri tíma í pössun á leikskólum og eftir að þau eru komin í skóla þá þurfa þau að vera í skólapössun til kl 17.00.Þetta segir okkur að við erum með börnunum okkar aðeins nokkra tíma á dag á meðan þau borða ,morgunverð og kvöldverð.Hverjir eru þá með börnunum okkar,jú það er starfsfólk leikskólanna og grunnskólanna,starf þeirra er það mikilvægt að þau eiga skilið að fá mannsæmandi laun.Við foreldrarnir ásamt þessum starfshópi sem ég nefndi eru þau sem koma börnum okkar til manns og hjálpum þeim að velja rétta leið í framtíðinni,svo ég gleymi ekki ömmunum og öfunum,(það verður bloggað um það sér).Ég skora á stjórnvöld að greiða þessum starfshópum sem sjá um börnin okkar góð laun,til þess að í framtíðinni komi ekki til þessi vandræði sem verið hefur til þessa vegna lágra launa.

Vita einhverjir hver Sean og Amelie McCann eru ?

Jú sennilega eru einhverjir sem vita það,en þetta eru TVÍBURARNIR,börn McCann hjónanna.Á meðan við alheimur veltum okkur uppúr fréttum um hvarf Madeleine,þá hugsum við ekki að sama skapi um tvíburana litlu.Hugsandi aðeins til þeirra þá hljóta þau að líða fyrir þær hörmungar sem foreldrarnir eru að gagna í gegnum.Nú eru félagsmála yfirvöld í bænum þar sem hjónin búa,komin á fullt með að athuga hvort tvíburarnir fái nóga ummönnum frá foreldrum sínum vegna réttarstöðu þeirra.McCann hjónin eiga jafnvel yfir höfði sér að börnin vera tekin af þeim.Það er ekki hægt annað en að vorkenna þessum blessuðum börnum,þau þurfa að upplifa allt það sama og foreldrarnir,en án þess að skilja hvað er að gerast.Ef tekin er mynd af hjónunum þá birtast myndir af tvíburunum líka.Þau hafa þurft að lifa í 4 mánuði með ljósmyndara,lögreglu og almenning á hælunum.Síðan eru þau í ókunnu umhverfi,án annarra meðlima fjölskyldunnar eins og t.d. ömmu og afa..Saksóknari í Portúgal er búinn að fá skjöl uppá 1000 síður,og sagt er að vegna seinagangs Portúgölsku lögreglunnar getur málið dregist í nokkra mánuði í viðbót.Þá óska ég þess að tvíburarnir fái að vera áfram hjá foreldrum sínum nógu mikið hefur gengið á hjá þeim svo að þau þurfi ekki líka að upplifa það að vera tekin í burt frá foreldrunum.

E þrengist að McCann hjónunum.!

Rannsóknin nálgast dag frá degi meira og meira McCann hjónin,nú er Portúgalska lögreglan búin að staðfesta að 99%líkur séu á því að erfðarefnin sem fundist höfðu í bílnum séu úr Madeleine litlu,og þetta var bílaleigubíll sem hjónin tóku á leigu 25 dögum eftir að barnið hvarf.Ennfremur telur Portúgalska lögreglan líkur á því að lík barnsins hafi verið í allt að 14 daga inni í íbúðinni þar sem fjölskyldan bjó í Algarve Portúgal,hvar hefur hún þá verið geymd.? McCann hjónin fóru frá Portúgal fyrir nokkrum dögum með þau einu skilyrði að þau létu vita af sér á 5 daga fresti,nú eru þau að leita sér að góðum lögfræðingi, og hafa þau leitað til Micael Caplan lögfræðings sem meðal annars varði einræðisherrann Agusto Pinochet árið 1999.Lögreglan í Portúgal neitar því ekki að möguleiki sé á samvinnu milli Bretlands og Portúgals,hvað varðar yfirheyrslum á McCann hjónunum.Þetta er hræðilegur harmleikur hvernig sem málið endar.En segjum svo að þau séu sek,sem ekki er svo ótrúlegt,hvernig hafa þau getað sem foreldrar verið svona köld ,þau hvorki blikna né fella tár í augsýn almennings.Hvernig hafa þau getað hrundið af stað öllu fjölmiðla fári,og söfnun,það er búið að safna fyrir milljónir og þekkt fólk um allan heim hefur tekið þátt í þessu með þeim,þau hafa farið til páfa og kysst á hendi hans.Þvílík hræsni ef þau eru sek og það þarf að hafa ískalt blóð og jafnvel frosið til að geta gert þetta.Það er einmitt þetta sem mér hefur fundist frá fyrsta degi skrítið,McCann hjónin eru svo köld að þau gætu verið marmarastyttur. 
mbl.is Portúgalska lögreglan segir DNA-sýni afdráttarlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búin að henda út bloggvinum !

Þá er ég búin að henda út þeim bloggvinum sem ekki voru virkir,og nú fer ég á stúfana að leita að nýjum bloggvinum,kannski koma þessi tveir sem eru hér fyrir neðan í staðin?LoLGrinWink

 Cup_of_cat

 

 

 

 

+

 

  

 

 


Út með nokkra bloggvini.!!!

Ég ætla að kasta nokkrum bloggvinum út hjá mér,og eru það þeir sem ekki hafa skrifað neitt blogg síðan ég veit ekki hvað í marga mánuði,til hvers að hanga með mynd af einhverjum sem ekki skrifar og tilkynnir ekki bloggfrí ef þau skrifa ekki þá lesa þau ekki bloggið hjá mér,og kalla hann eða hana bloggvi.  Nei,út með þau.Cool


Farin heim.!

Þá er McCann fjölskyldan farin heim í  raun skil ég ekki ástæðuna,kannski vegna þess að þau vilja vera heima hjá sér ef þau verða ákærð og taka út dóminn þar í bresku fangelsi,en við skulum vona að til þess komi ekki.Það hlýtur að gera rannsóknina erfiðari þar sem þau eru ekki til staðar.Mér hefur ekki líkað sú umræða sem  hefur verið í gangi, að Portúgalska lögreglan standi sig ekki,við megum ekki gleyma því að Breska lögreglan tekur líka þátt í rannsókninni,m.a. með rannsóknar hundum sem leituðu í íbúðinni eftir vísir af erfðarefnum.Þau gögn sem fundust voru send til Bretlands og rannsökuð þar.Svona neikvæð umræða,sem jafnvel birtis í blöðum erlendis og heyrist t.d. frá  fjölskyldu McCann er ekki af hinu góða,við getum ekki litið á svona rannsókn eins og við værum að horfa á Bandaríska bíómynd þar sem allt er svo létt og sökudólgur finnst á "no time".Það síðasta sem maður les er það að Portúgalska lögreglan hafi komið fyrir í íbúðinni og í bílnum þeim erfðarefnum sem fundist hefur,hvernig er hægt að saka lögregluna um slíkt,við sjáum þetta í sjónvarpsþáttum eins og Law and Order og öðrum slíkum þáttum en ekki í raunveruleikanum ég vil ekki trúa því.
mbl.is Foreldrar Madeleine á heimleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju vilja þau allt í einu fara frá Portúgal ?

Vissulega eru McCann hjónin ekki sek fyrr en sekt er sönnuð,þess vegna eiga þau ekki að fara frá Portúgal ef þau hafa hreinan skjöld.Þau geta haldið áfram herferð sinni við að leita að dóttir sinni því hún hvarf í Portúgal ekki í Bretlandi.Ég reyndar álít að þau eigi að hætta herferðinni,og leyfa lögreglunni í Portúgal og Bretlandi að vinna vinnu sína allt annað er til að rugla málið,það er kannski áætlunin.Málið hefur verið einkennilegt frá byrjun,og ég vona að þau séu saklaus og sökudólgurinn finnist fljótt.Errm
mbl.is Foreldrar Madeleine vilja komast frá Portúgal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að gerast í atvinnumálum landsmanna ?

Það er ekki frásögu færandi að ég fór í verslun í morgun,þar afgreiddi mig ungur maður sem sagði ekki orð,hvorki takk,né gjörðu svo vel eða hve mikið ég skuldaði,ég sagði við hann í góðu að hann ætti að nota nokkur orð í íslensku það væri vel þegið,og hann brosti.Ég er ekki að finna að því að útlendingar séu í vinnu hér,það væri ekki við hæfi frá minni hlið,en það er annað sem liggur að baki  þegar ég segi hvað er að gerast í atvinnumálum landsmanna? Hvað gerir það að verkum að það vantar í flest þjónustu störf,ummönnunar störf,leikskóla og f.l.. það er væntanlega vegna þess að þessi störf eru ekki nógu eftirsótt vegna launa og sennilega þykja ekki nógu fín,því ekki er hægt að bjóða sprenglærðum sérfræðingi að vinna þessi störf.En erum við öll Íslendingar sprenglærðir sérfræðingar, ég held ekki ,er ekki komið eitthvað í þjóðfélagið,við viljum öll vera í störfum sem ekki eru erfiðis störf og með topp laun.Ég spyr bara eru TIL NÓG AF STÖRFUM, fyrir það fólk sem EKKI vill vinna þessi þjónustu störf og ummönnunar störf.Afleiðingar þess að við viljum velja þau störf sem við vinnum við ,sem er  í raun ekkert skrítið, eru þær að við verðum að flytja inn vinnuafl til að þjóna okkur,og þá segi ég verum ekki með neina hræsni gagnvart innflytjendum tökum vel á móti þeim,og reynum að gera þá að góðum þegnum.En hvað varðar okkur Íslendinga þá segi ég  bara að öll störf eru jafn nauðsynleg,því ef ekki væri til sá sem tekur ruslið hjá okkur eða sá sem afgreiðir okkur úti í búð þá veit ég ekki hvar við værum stödd.Við þurfum að breyta hugarfari okkar,förum að líta jákvæðum augum á öll störf þjóðfélagsins og  borgum því fólki sem velur þessi "óvinsælu"störf , betri og mannsæmandi laun.Drullugallar og þjónustuföt verða að vera til staðar,það geta ekki allir unnið í jakkafötum og drögtum.Wink

N um Madeleine McCann !

En koma einhverjar fréttir um þessa litlu stúlku,en það sem ekki hefur komið fram er að erfðarefnin sem fundust eru líklega úr barninu,og að foreldrarnir eru yfirheyrð í sitt hvoru lagi,Sá eini sem liggur undir grun er þessi Englendingur sem býr í næsta nágreni við íbúðarblokkina þar sem fjölskyldan bjó í Portúgal.Ég hef lesið í nokkrum bloggum þar sem er verið að setja út á Portúgölsku lögregluna,það finnst mér ekki sanngjarnt,því hún hefur lagt töluvert á sig til að finna litlu stúlkuna,en það er ekkert óeðlilegt að Bresk yfirvöld leggi sitt að liði þau eru jú Bfreskir þegnar.Foreldrarnir gert það líka með ýmsu móti,meðal annars hafa þau sagt að barnið væri ef til vill á Spáni,ég hlustaði á viðtal við þau þegar þau tilkynntu þetta,en höfðu ekkert fyrir sér í því þetta voru bara getgátur,og svona getgátur seinka fyrir rannsókn.Ég vona svo sannarlega að þetta mál fari að leysast fyrir alla aðila.
mbl.is Erfðaefni fundið í rannsókn á hvarfi Madeleine
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkjamenn gera allt vitlaust vegna eigu kjarnorkuvopna,en hvað gerist heima fyrir !

ThumbnailServer2

Öryggið hjá Bandaríkjamönnum virðist ekki vera upp á marga fiska,ef sprengivél með virkum kjarnaoddum getur flogið þvert yfir Bandaríkin án þess að nokkur viti af því finnst mér  vera virkilega hlægilegtLoL,ég held að þeir ættu að hugsa aðeins meira um það sem er að gerast heima fyrir og ekki hafa svona miklar áhyggjur af þeim löndum þar sem olía finnst.Þeir gera allt vitlaust ef hinn minnsti grunur leikur á að kjarnorkuvopn geti verið í landinu,ég veit ekki betur en Bandaríkjamenn séu þeir sem einna mestu kjarnorkuvopn eiga,ég vona svo sannarlega að þeir passi vel upp á sín kjarnorkuvopn og geymi þau í vel læstum hirslum sem engin kemst í, ekki einu sinni Hr.Bush,því þá væri við í virkilegri hættu.


mbl.is Flaug með virkar kjarnorkusprengur yfir þver Bandaríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Ágúst 2025

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband