Ég er hrifin af þessu frumvarpi sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir lagði fram um að orðið ráðherra yrði breytt,svo að konur yrðu ekki kallaðar herra.Orðið Ráðherra má segja að sé stöðutákn,og eigi fyrst og fremst við þá virðingastöðu sem viðkomandi einstaklingur gegnir,en enga að síður er ekki ástæða á 21 öldinni að kalla konur herra.
Orðið ráðherra er ekki eina orðið í íslenskri tungu sem þetta á við,en í dag eru breyttir tímar og það þarf bara að gefa þessu tíma og breyta því smátt og smátt.
Ég vil koma með tillögu,ég legg til að við höldum orðinu RÁÐHERRA fyrir karlmenn, en fyrir kvenmenn RÁÐKVINNA.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid
Athugasemdir
Góðar hugmyndir hjá þér og nauðsynlegt að taka þessa umræðu. en þegar ég var smápatti og menn urðu allt í einu hjúkrunarfræðingar, þá líkaði mér illa sú breyting, fannst allt í lagi að starfsstéttinn héti áfram hjúkrunarkonur og þykir enn. Sama með þetta, mér finnst í lagi að kona beri starfstitilinn Ráðherra en skil rökin að finna kynhlutlaust nafn.
Gísli Guðmundsson, 24.11.2007 kl. 20:34
Okkar ylhýra tungumál veldur okkur eiginlega vandræðum í þessu vegna mjög ákveðinnar kyngreiningar í flestum nafnorðum. T.d. finnst mér orðið stjóri og maður vera afar karllæg orð en þeim er oft skeytt aftan við stöðuheiti. Þannig að t.a.m. orðið ráðstjóri hefði frekar karllæga meiningu. Kannski er gamla orðið ráðgjafi best þótt það sé karlkynsorð.
Lárus Vilhjálmsson, 25.11.2007 kl. 11:31
Gísli og Lárus,mér hefur í raun alltaf fundist ráðherra standa fyrir stöðugildi,en væntanlega verður að breyta þessu eins og t.d flugfreyjur og flugþjónar.Það sem mér finnst með ráðkvinna og ráðherra þetta hljómar svipað og er ekki óþjált.Ráðgjafi er einnig gott.
María Anna P Kristjánsdóttir, 25.11.2007 kl. 12:46
Já að hafa karlkyns og kvenkyns orð yfir öll starfsheiti, gæti orðið svolítið flókið. Skrítið finnst mér að feministar hafi ekki breytt því orði. Orðið feministi er kk. nafnorð. Því ekki að breyta því í feminISTA. Og af hverju er kvenkyns læknir ekki bara þá lækna o.s.frv. Þannig að færi þetta þá ekki að ganga heldur langt og mundi einhver nota þetta? En maður skilur þetta kannski betur með þetta starfsheiti ráðHERRA, það er svo rosalega karllægt.
alva (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 17:06
Alva,það er alveg fullt af karlkyns starfsheitar nöfnum í íslenskunni og það getur orðið flókið mál að breyta því,en ég held samt að því veri breytt smátt og smátt.
María Anna P Kristjánsdóttir, 25.11.2007 kl. 19:56
Guðmundur þú ert alveg svakalegur,RÁÐHERFA,þetta getum við ekki gert.En það er rétt hjá þér að orðið RÁÐHERRA er stöðutákn og hefur ekki verið tengt við kyn í mínum huga þar til nú.
María Anna P Kristjánsdóttir, 26.11.2007 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.