Hættulegir ökumenn !

Picture of Driving in the snow, Massachusetts, USA - Free Pictures - FreeFoto.comÉg var að keyra Hringbrautina í gær og varð á vegi ökutækis sem ung stúlka ók,ég reyndi að koma mér í burtu frá þessum bíl hvers vegna ? jú,vegna þess að bíllinn var óökuhæfur og stúlkan ekki hæf til að sitja við stýrið.Ég vil útskýra þetta nánar,þetta var í hádeginu veðrið var ágætt,en stúlkukindin hafið ekki hreinsað sjóinn af bílnum,framrúðan hafði verið hreinsuð nóg til að sjá út, og glugginn við bílstjórasætið, en afturrúðan og aðrar hliðarrúður voru þakin snjó.

Ef þetta hefði verið í blindbil og illviðri hefði ég kannski skilið að bílinn væri þakinn snjó,en þetta sýndi að stúlkan hafði ekki nennt að hreinsa rúðurnar,bara það allra minnsta til að sjá út .Okkur ber skilda til að hreinsa vel rúður á bílum okkar,ljós og stefnuljós,þetta er ekki aðeins gert fyrir okkur,líka fyrir hina ökumennina.

Bílinn var ekki aðeins óökuhæfur vegna snjós,stúlkan var líka að tala í símann.Þegar maður sér svona atvik þá hugsar maður til lögreglunnar,þarna hefði átt að stöðva bílinn og sekta stúlkuna fyrir að tala í síma og aka á bíl þakinn sjó á öllum rúðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

þetta er meinið i okkar umferð !!!!!!,maður sér þetta daglega,þetta er athugandi fyrir löggæsluna/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.2.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta er alls ekki nógu gott, sammála ykkur Halla, það þarf að taka á svona löguðu.

Greta Björg Úlfsdóttir, 29.2.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Það sem ég sé oftar og oftar eru bílstjórar talandi í símann,það líkar mér alls ekki.

María Anna P Kristjánsdóttir, 29.2.2008 kl. 13:54

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ekki mér heldur. Maður getur verið viss um að ef einhver bíll hægir skyndilega á sér í miðri umferðinni þá er það af því að bílstjórinn er að tala í farsíma. Og eins hef ég líka tekið eftir að fólk gefur ekki stefnuljós á meðan það talar í símann. fFyrir nú utan það að fólk er alls ekki með athyglina óskipta við aksturinn með þessu lagi.

Greta Björg Úlfsdóttir, 29.2.2008 kl. 15:44

5 Smámynd: Steinunn Þórisdóttir

Svona til fróðleiks, þá er lögreglan farin að sekta þá (sem hún nær til) sem ekki moka snjó af bílum sínum. Svo þakka ég þér María fyrir hlýjar kveðjur.

Steinunn Þórisdóttir, 1.3.2008 kl. 00:16

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Góð og þörf áminning hjá þér María.  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 1.3.2008 kl. 07:33

7 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Takk fyrir athugasemdirnar.kveðja til allra.María

María Anna P Kristjánsdóttir, 1.3.2008 kl. 18:46

8 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Ég verð að ljóstra því upp, að ég er hætt að aka á götum úti til dæmis milli 1600og 19oo. Það er orðið soldið hallærislegt, ef barnafólk og fleiri þurfa að einangra sig einhversstaðar vegna umferðarinnar.

   Ég ók tildæmis fram á tvo árekstra í gær.

Sólveig Hannesdóttir, 2.3.2008 kl. 12:51

9 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Sólveig,það er svo mikil umferð á þessum tíma,allir að koma frá vinnu og flýta sér í verslun til að kaupa í kvöldmatinn.

María Anna P Kristjánsdóttir, 2.3.2008 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband