Færsluflokkur: Bloggar
Ég mundi það allt í einu í morgun að ég fermdist 1.apríl fyrir ???? mörgum árum,vonandi var það ekki allt í plati,ég er vonandi fermd,ég held það hljóti að vera,kannski ekki.Ef það var allt í plati hvað á ég að gera í dag,láta ferma mig aftur, gömlu konuna.
Ég man að ég var voða fín í ljósbláum kjól sérsaumuðum,og ég vildi greiða mér sjálf með spöng í hári, ekki blóm eins og tíðkaðist þá,og ég fermdist í Hallgrímskirkju eins og hún var pínulítil.Dagurinn var fínn og ég held að ég láti allar vangaveltur um fermingu eða ekki fermingu 1.apríl lönd og leið.
Bloggar | 1.4.2008 | 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Spasskí kominn til landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 8.3.2008 | 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þar sem ég vinn með ferðamönnum,þá gefur það auga leið að ég tala mikið við þá um daginn og veginn og álit þeirra á Íslandi.Lítið nefna þeir stóriðjur og eyðileggingu á landslagi,en það sem virkilega liggur þeim á hjarta er dýrtíðin hér,og þá sérstaklega hvað varðar mat.
Þeir koma móðir,másandi og æstir eftir eina kvöldmáltíð sennilega síðustu kvöldmátíðina á Íslandi því eftir þetta taka samlokur við.
Ferðamennirnir eiga bara ekki orð,þeir segja við mig að þeir hafi borgað nær 8000.- kr fyrir einn rétt og eitt glas af víni stundum er þetta dýrara.Þetta held ég að fari mjög svo fyrir brjóstið á ferðamönnunum okkar,það vantar ekki að þeir eru hrifnir af landinu segja það stórbrotið.Þjónustan mjög góð og gisting líka en dýrtíðin gerir það að verkum að þeir hugsa sig tvisvar um,þegar þeir eru spurðir hvort þeir muni koma aftur.
Þetta er nokkuð sem við verðum að taka til athugunar ef við viljum vera samkeppnishæf á alþjóða markið hvað verðar ferðamenn.
Ísland fellur um sjö sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.3.2008 | 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þeir gera stór grín að keppninni en með þræl gott popp lagi,minnir á gamla disco tímann.Írum hefur ekki gengið vel undanfarin ár,enda ekki furða því lögin hafa ekki verið góð,sem er sorglegt því Írar er þeir sem oftast hafa unnið keppnina.
Hvað varðar okkur Íslendinga, þá er ég kampa kát,því besta lagið vann,flottur flutningur,og flott lag.Mér fannst hó hó alltaf verða verra og verra eftir því sem ég heyrði það oftar,hvað varðar gúmhanskana þá hefði það verið í lagi ef lagið hefði verið með meiri melódíu.Ég skil ekki af hverju Davíð Þorsteinn sem söng og lék á píanó gleymist í umræðunni,hann var með mjög gott lag.
Ég vona að Íslendingar eyðileggi ekki framlag okkar með lélegu myndbandi eins og gert var í fyrra.Til hamingju Íslendingar með val okkar.This is my life !!!
Kalkúnn fulltrúi Íra á Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.2.2008 | 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég skil fyrirsögnina,en hún er ekki í samræmi við textann.hvað eigum við að lesa úr þessu,vill hverfafélagið að Vilhjálmur víki eða vilja þau hann sem borgarstjóra?
Við í hverfafélögunum eigum ekki að gefa út einhverjar yfirlýsingar í fjölmiðlum þess efnis hvort Villi eigi að vera áfram eða ekki,og í raun finnst mér það vanhugsað af þessu hverfafélagi að gefa slíka yfirlýsingu.Oftar en einu sinni hefur verið áliktað í mínu hverfafélagi um eitthvað mál sem við vildum láta ræða um og síðan höfum við komið ályktuninni áleiðis á réttan stað,án yfirlýsinga í fjölmiðlum.
Hverfafélag vill ekki Vilhjálm sem borgarstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.2.2008 | 18:33 (breytt kl. 22:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.2.2008 | 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eftir mjög svo umdeilda yfirtöku meirihlutans í borgarstjórn,verð ég nú að segja að svona yfirlýsingar hvað varðar flugvöllinn eru allskostar óviðeigandi nú sem stendur.Við vitum öll að flugvöllurinn er ekkert að fara á næstunni,ekki fyrr en undir 2025 það eru 17 ár í það.
Flugvöllurinn er hjartans mál nýja Borgarstjórans,er einhver ástæða til að gefa minnihluta byr undir vængi með óeiningu innann meirihlutans,ég held ekki.Það logar allt í borginni vegna yfirtökuna og mér finnst að nýr meirihluti verði að ræða málin af skynsemi án stórra yfirlýsinga,það á ekki við nú eins og málin standa í dag.
Vilja íbúðabyggð í Vatnsmýri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.1.2008 | 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég reyndi að fylgjast með sjónvarpi þegar nýr Borgarstjóri tók við völdum,ég verð nú að segja að við verðum að sýna smá stillingu.Hvort sem okkur líkar betur eða verr við býja borgarstjórn,þá eru svona ólæti eins og voru á pöllunum ekki til góðs,og Íslendingum ekki til sóma.
Stjórnmál kalla ekki allt ömmu sína og þetta sem hefur verið að gerast í borgarstjórn núna undanfarna mánuði sýnir það,en við kjósendur höfum lítið að segja þegar búið er að ákveða einhvern hlut við verðum bara að sætta okkur við og gera gott úr.
Það eina sem í raun hrífur þegar á reynir er einfaldlega að fara ekki að kjósa ef við erum ósátt við eitthvað, eða kjósa á skjön við það sem við og þið hafið gert áður.
Við kjósendur verðum oft að sætta okkur við ef okkar fólk kemst ekki að, og það gerist ekkert,alls ekkert,því segi ég eigum við ekki að halda ró okkar og gefa Ólafi F Magnússyni tækifæri.
Ólafur: Aðalatriði að ég starfi af heilindum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.1.2008 | 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mótmæla nýjum meirihluta í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.1.2008 | 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég er ekki af þeirri kynslóða að geta skilið þessa auglýsingu.Þegar ég sá auglýsinguna frá fyrirtækinu Nova ,þá hélt ég að þetta væri í raun skemmtistaður,og hugsaði jæja nú erum við að fá glæsilegan skemmtistað,ég beið og beið og aldrei kom neinn skemmtistaður,alltaf hékk auglýsingin utan á húsinu í Lágmúlanum,og hangir væntanlega enn.
Hvernig á maður að skilja að fjarskiptafyrirtæki auglýsi sig sem stærsta skemmtistað í heimi,hvað er svona skemmtilegt við fjarskipti,eru fjarskipti ekki bara nauðsynleg fyrir alla aðila,það hefði ég haldið.
Nova kærir Símann til Samkeppniseftirlits | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.1.2008 | 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid