Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

N eitt barnaránid.

Nú forum við að fá oftar fréttir af barnaránum síðan litla breska stúlkan hvarf í Portúgal.Thetta er reyndar ekkert nýtt af nálinni,á hverjum degi hverfa fullt af bornum í thessum stóru borgum,og thessi þróun er hraedileg og hryllileg upplifun fyrir foreldra.Ég sá í sjónvarpinu á Spáni fyrir stuttu að uppseld eru taeki sem eru sett á únlid barnsins og með þessu taeki geta foreldrar fylgst með ef barnið fer of langt frá theim,thví thad pípir í taekinu,thetta er audvitad mjög sniðugt,svo framalega sem thau thvinga ekki börnin,og theim finnist thau vera undir of miklu eftirliti.
mbl.is Þriggja ára gamall hollenskur drengur hvarf í Róm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar var "Greenpeace" ?

Ég verð nú að segja að thetta synd og skömm,thetta er hrein og bein villimennska að skemmta sér við að drepa 83 höfrunga,their eru thekktir fyrir að vera ljúfir,their gleðja augað og gleðja börnin okkar.Ég vona að áhöfnin náist og fái hámarksrefsingu.Police


mbl.is Höfrungadráp náðist á myndband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Thetta er skammarlegt.

Ég held að heilbrigdiskerfid hjá okkur Íslendingum megi roðna af skömm.Að vita til thess að hjón á áttraedisaldri skuli thurfa að skilja til thess að haegt sé að koma konunni á stofnun.Við erum thad lítil thjód Íslendingar að thetta á ekki að thurfa að viðgangast,thví nóga skatta borgum við,og ég efast ekki um  að einhversradar eru nógir peningar,einhvad er ekki að ganga upp,peningarnir fara vaentanlega í einhvad annað.Síðan thegar búið er að útvega stofnun fyrir viðkomandi,thurfa  blessaðir eldri borgaranir okkar að fara að sofa hjá einhverjum oedrum en maka sínum,enn gaman, vegna thess að ekki eru til nóg af einbýlum,hjón sem hafa verið saman í ein 60-70 ár,er thetta bjóðandi.Með thessu áframhaldi thá verða eflaust alltaf faerri og faerri giftingar,eða fleiriog fleiri hagkvaemis skilnaðir.Ég vona að með nýjum mönnum í heilbrigðiskerfinu verði thetta betra með árunum.GetLost


mbl.is Hagkvæmnisskilnaður á áttræðisaldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvad er ad vera klukkud???

Ég er að lesa í ýmsum bloggum að hinir og thessir hafa verið klukkaðir,er einhver sem getur útskýrt fyrir mér hvað thad er,allavega veit ég thad ekki???,en mér sýnist thetta vera skemmtilegur leikur,Kveðja frá Maríu sem er óklukkuð.W00t

Alþjóðleikar unglinga.

Ég var að koma af setning alþjóðleika unglinga " 41st International children´s games"sem var haldin var á Laugardalsvelli.Rosalega var ég stolt fyrir hönd Íslands að halda svona glæsilega opnunarhátíð,allt gekk svo vel,flott innganga hjá öllum og ekki sérstaklega hjá okkar fólki.Skemmtiatriði voru skemmtileg,allt var vel æft hvergi voru mistök,Vilhjálmur borgarstjóri og þeir sem stóðu að skipulagningunni mega vera stoltir.Þar var stiklað á stóru hvað varðar sögu okkar þjóðar,víkingar þrömmuðu um í öllu sínu veldi,grýlur sáust líka einnig svífandi dísir. Fimleikafólk léku listir sínar,galdramenn og margt margt fleira. Regína Ósk söng lag sem sérstaklega var búið til fyrir leikana,og það gerði hún vel að sjálfsögðu.Þar sem við eigum svo mikið af glæsilegu íþróttarfólki, þá vonast ég til þess að landsbúar venji komu sína þessa dagana á Laugardalsvöllinn og Laugardalslaugin til að horfa á krakkana keppa, þau hafa lagt mikið á sig og eru að keppa fyrir Íslands hönd,við skulum styðja við bakið á þeimHappy
mbl.is Sumarhátíð og alþjóðaleikar í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinsælir bloggarar fá greitt fyrir að blogga.

Er þetta það sem koma skal,að þeir sem eru vinsælir bloggarar,(ég er ekki ein af þeim,smá öfund ég mundi örugglega ekki neita nokkrum krónum) verði atvinnubloggarar, og fá greitt fyrir. Ég veit ekki hvort sú þróun sé rétt,við erum jú að blogga vegna þess að okkur þykir gaman af þessu,það var enginn sem bað okkur að byrja að blogga.Ef vinsælu bloggararnir fá borgað fyrir eins og þeir gera í Svíþjóð,þá er spurning hvort blogg missi ekki marks,fara ekki allir að reyna að blogga eins og Ellý,eða Egill,til að ná vinsældum og til að fá krónur í vasann.Verður samkeppnin í bloggheiminum ekki töluverð,bloggarar fara að bera saman tölufjölda hve margir koma inn á síðuna hjá hverjum og einum.Eitt ættum við að hafa í huga,hverjir eru vinsælir bloggarar og hverjir koma til með að fá greitt,það eru þeir sem eru þekktir í þjóðfélaginu,þ.e.a.s. þeir sem eru tengdir fjölmiðlum á einhvern hátt,og við hin verðum að sætta okkur við það.

Bílastæði öryrkja og letingjar.

Ég var að koma úr einum af stórmörkuðum bæjarins,sem er ekki frásögu færandi. Þegar ég var að leggja mínum bíl löglega í eitt af bílastæðunum kom bíll brunandi eftir bílastæðinu og sá ég að undir stýri sátu tvær ungar og fallegar stúlkur,ég veiti þessum bíl ekki meira athygli en þegar ég sá hvar hann leggur í stæði fatlaða þá fer ég að hugsa nú þær eru fatlaðar,gott að það var laust stæði fyrir fatlaða, en þegar þessar tvær fallegu dömur stíga út úr bílnum leggjalangar á háum hælum, þá eru þær ekki líkamlega fatlaðar,heldur alheilbrigðar,hvort þær hafi ekki kunnað að ganga langar leiðir á háum hælum þess vegna þurftu þær að leggja í bílastæði fatlaða sem var næst versluninni eða voru þær hrint og beint letingjar sem ekki bera virðingu fyrir þeim sem ekki eru jafn heilbrigðir og þær sjálfar.Spurningin er hver er fatlaður og hver er ekki,nennum við sem eigum að teljast ófötluð,virkilega ekki að ganga nokkur spor og leggja bílum okkar í þau stæði sem er okkur ætluð,sem í þessu tilfelli var nóg af,bílastæði fyrir fatlaða eru yfirleitt ekki fleiri en 1-2. Ég get verið dálítið óforskömmuð stundum,því ég mætti stúlkunum inni í versluninni og ég ókvart fyrir þær með vagninn minn og ég sagði við þær fyrirgefið þið eruð fatlaðar ég skal færa mig,ég veit að þetta var ljótt af mér en ég réði ekki við mig.Shocking

Akureyri-Keflavík og innanlandsflug.

Nú mega Akureyringar vera kampa kátir,þetta kemur til með að vera mun þægilegra fyrir þá að ferðast í framtíðinni,og ég er glöð fyrir þeirra hönd.Þetta flug Akureyri-Keflavík gerir það að verkum að ferðakostnaðurinn minnkar, ekki þarf á næturgistingu í Reykjavík,ekki þarf leigubíl á milli innanlandsflugs og hótelsins og ekki þarf að borða þennan dag sem dvalið er í Reykjavík og ekki þarf á rútu að halda til að komast til Keflavíkur.Í mínum huga er þetta byrjunin á því að færa innanlandsflug til Keflavíkur,og ég er algjörlega á móti því,eins og ég bendi á þarna erum við Reykvíkingar strax farin að missa störf. Ég tek það fram að mér finnst að við eigum að gera allt til þess að gera auðveldara fyrir landsbyggðina til að ferðast hingað til Reykjavíkur og til Keflavíkur, en það eru ekki bara landsbyggðafólk sem ferðast þessa leið það erum líka erlendir ferðamenn.Ef innanlandsflug verður fært til Keflavíkur þá missum við mikið af störfum,ég ætla enn einu sinni að rifja upp úr fyrri bloggi mínu um innanlandsflug. Við missum vinnu og tekjur úr ferðamannageiranum þ.e. HÓTEL,VEITINGASTAÐIR,LEIGUBÍLAAKSTUR, VERSLUN AF ÝMSU TAGI SKOÐUNARFERÐIR Í RÚTU, MINNKUN AÐSÓKN Á ALMENNINGSSÖFN T.D. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ OG ÁRBÆJASAFNIÐ SUNDLAUGAFERÐIR OG AÐSÓKN Á LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVAR,BÍÓFERÐIR. Þetta er bara hluti af því sem ég man í augnablikinu,ég er sjálf að vinna með ferðamenn og er ég að rifja upp þær spurningar sem ég fæ dags daglega frá erlendum ferðamönnum.Akureyri - Keflavík er gott mál svo framarlega sem það er ekki byrjunin á því að færa innanlandsflug til Keflavíkur,ég segi stopp.Innanlandsflug áfram í Reykjavík.


mbl.is Fyrsta flug Icelandair frá Akureyri til Keflavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ódýrar íbúðir,í Skuggahverfi.

Er ekki í lagi með stóran hóp þjóðfélagsins,íbúð fyrir 230 milljónir,það verða örugglega margir sem fá sér þvílíka íbúð,allavega einhverjir úr Seðlabankanum og aðrir sem ekki þurfa að spara til að  kaupa íbúðina heldur slengja fram 230 milljónum á borðið. Þetta er ekki stór hópur því miður,hann mætti vera stærri gott væri ef 95-100% af þjóðinni hefði efni á þessum kaupum.GetLost
mbl.is Dýrasta íbúðin á 230 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæm þróunn.

Slæmt er að vita af því að 14 einstaklingar voru teknir fyrir ölvunarakstur,hvað er að gerast er þetta ekki of mikið,og ekki er þetta aldurstengt því frá 20-50 ára aldri voru þessir höfðingjar og dama.Ég veit ekki hvort þetta kallist að vera sniðugur og halda sig aldrei nást,eða eru þetta einfaldir bjánar sem leggja líf sitt og annarra í stórfellda hættu.Ég held að þið sem leggið þetta í vana ykkar að keyra undir áhrifum áfengis ættuð að hætta þessu og hugsa aðeins um umhverfið í kringum ykkur,þetta á líka við ykkur hina sem keyrið eins og brjálæðingar um götur borgarinnar og á vegum úti á landi,líf ykkar getur ekki verið svo slæmt að það sé þess virði að vera með einhverja sjálfseyðingarhvöt undir stýri.Þið eruð kannski heppin einu sinni en í næsta skipti getur líf ykkar breyst til muna,kannski bíður hjólastóll eftir ykkur,rúmlega það sem eftir er af ævinni eða þið eigið á samviskunni líf einhvers sem hefur lent í slysi við ykkur."Gott er að hætta hverjum leik þá hæst fram fer".(Hallgrímur Pétursson)
mbl.is Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband