Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

N um Silfur Egils.

Maður spyr sig,hvað liggur á bak við þessar ásakanir,er það ef til vill vegna þess að 365 Miðlar eru að missa einn af vinsælustu sjónvarpsmönnum þjóðarinnar, það  er auðvitað alltaf erfitt fyrir fyrirtæki að sjá eftir góðu starfsfólki og hvort sem Egill er góður starfsmaður eða ekki þá er hann með afburða áhugaverða og skemmtilega þætti, en maður kemur í manns stað,og 365 Miðlar geta varla lagt sig svo lágt að vilja vera með mann innanborðs sem er búinn að ráða sig til annars fyrirtækis.
mbl.is Deila um hvort Egill hafi verið búinn að semja við 365
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Steingrímur í VG.

Hann Steingrímur er hæfileikaríkur maður,ég sat inn í stofu í gærkvöldi  og horfði á umræður frá Alþingi  og hef sjaldan skemmt mér eins vel ,Steingrímur fór á kostum, ég vissi ekki á tímabili hvort ég væri að horfa á leikþátt  í leikhúsi eða Alþingis umræður, ekki er því að neita að hann er með eindæmum orðheppinn maður.En hann verður að passa sig, þvílíkt ergelsi og vanlíðan vegna þess að VG komust ekki í ríkisstjórn,ég hef ekki meira að segja hvað þetta varðar en MAÐUR HELDUR MIG SIG. 


Hvað er að gerast !!!

það er skömm að svona atburður skuli geta gerst eins og gerðist á Suðurnesjum um helgina,að þrjár stúlkur skuli gera sig sekar um slíkt athæfi,gera þær sér ekki grein fyrir hvað þær eru að gera við sína framtíð,þær eru hreint og beint að eyðileggja framtíð sína,ég nefni nú ekki hvaða áhrif þessi atburður á eftir að hafa á þolendur þessu gleyma þær örugglega seint og á væntanlega eftir að skapa vanlíðan lengi vel. Eftir þennan atburð verða gerendur væntanlega komnar á sakaskrá og þurfa ef til vill að dvelja á upptökuheimili og hvað tekur við eftir það. Þvílíkar dömur.Angry
mbl.is Tveimur 12 ára stúlkum misþyrmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nútímabörn.Nútímaþjóðfélag.

Ég er hrædd um að þetta sé eins farið hér á Íslandi,hraðinn er svo mikill, allir að keppast um að hafa það sem best og mennta sig sem mest,að blessuð börnin verða útundan.Það þykir ekki fínt að vera bara húsmóðir eða vinna hálf vinnu til að geta verið meira með börnunum.Einu sinni var vinkona mín sem hefur unnið með mér í um 20 ár og er í hálfu starfi spurð af því hvort hún hafi engan metnað fyrir sjálfan sig, hún var ekki lengi að svara á móti, jú ég haf mikinn metnað, og hann liggur í því að koma börnum mínum vel til manns,sem hún hefur svo sannarlega gert.Annað er líka að breytast í þjóðfélaginu,það er að á flestum vinnustöðum er mannekla,þar sem áður voru að vinna 20 manns eru í dag 10, og þetta gerir erfitt fyrir starfsfólk að vera heima hjá veikum börnum sínum,og það er ekki gott.
mbl.is Nútímabörn fá pillur í stað umhyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins,sterk stjórn.

Loksins erum við komin með sterka stjórn sem mark er takandi á, tveir grýðalega sterkir flokkar hafa myndað stjórn,ég  brosi út að eyrum því þetta var óskastjórn mín. Hvað varðar skiptingu ráðuneyta þá er ég einnig ánægð og ég sé að reynslu menn og konur verða í hverju sæti,ég reyndar hefði viljað sjá fleiri konur sem ráðherra hjá Sjálfstæðismönnum en það tókst ekki núna,verður seinna. Auðséð er að Geir H.Haarde er maður sem fer sér hægt en þorir,til hamingju.
mbl.is Stjórnarsáttmáli undirritaður á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin hélt velli.

Ríkisstjórnin hélt velli með naumum meirihluta, Sjálfstæðismenn bæta við sig 2.9 % og fá 25 þinngmenn ekki er hægt að segja annað en að þetta er stórglæsilegur sigur Sjálfstæðismanna eftir 16 ára stjórnarsetu,og persónulegur sigur Geirs H. Haarde.Til hamingju.

 


mbl.is Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakannanir

Ég er þeirra skoðunar að vægi skoðunakannana geti haft áhrif á útkomu kosninganna,og þá fyrir suma jákvæð áhrif og aðra neikvæð. Ef ég réði, sem ég geri ekki, þá myndi ég helst vilja banna skoðanakannanir viku fyrir kosningadaginn,þá gætu þær ekki haft skoðunnar myndandi áhrif á kjósendur, því við verðum auðvita að kjósa samkvæmt okkar sannfæringu ekki einhverra skoðanakannana sem eru kanski ekkert að marka. En nú er dagurinn runninn upp,og hvað kýs landinn, það eigum við eftir að sjá í kvöld, ekki er hægt að segja annað en að þessi dagur sé spennandi, Eurovisiona andi liggur yfir landinu  án Eiriks og strax á eftir útkoma úr kosningunum.Ég vil bara óska landsmönnum gleðilegan dag,og góða skemmtun í kvöld.Joyful 


mbl.is Hafa kannanir áhrif á kjósendur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breska stúlkan sem hvarf.

Hræðilegur atburður hafur gerst í Algarve á suður Portúgal, 3 ára gömul stúlka Madeleine McCann hvarf úr íbúð sinni þar sem hún svaf ásamt 2 ára tvíburabræðrum sínum. Sem betur fer er þetta atburður sem gerist mjög sjaldan,en gerist samt sem sýnir sig. Það sem gerir mig alveg orðlausa er hverning vel menntaðir foreldrar læknar bæði tvö, geta gert svona mistök að skilja börnin þrjú eftir alein i íbúðinni,það er yfirleitt hægt að fá barnapössun í gegnum ferðaskrifstofurnar.Á svona sólarlandastaði safnast saman allkonar fólk frá öllum löndum portúgalir,spánverjar englendingar o.fl. og þá er ég ekki að tala um ferðamenn,  heldur hina sem sjá lífið svo auðvelt,  ,þeir sem ekki vilja vinna hina hefðbundnu vinnu frá 09.00-17.00, þeir sjá sól alla daga, matur ódýr,bjór og vín í hverju horni og hvað fatnað varðar þá þarf ekki mikið af dýrum fatnaði,þeir vinna einn og einn dag til að fá smá pening og þess á milli betla þeir, þetta fóllk er stundum til í að gera hvað sem er,og hvað það er það vitum við ekki. Svo eru það hinir sem lifa í lúxús, flottar villur flottir bílar og spara ekkert við sig í mat, þeir safna að sér vesalingum sem vilja lifa auðveldu lífi,láta þá stela fyrir sig t.d. flottum bílum og keyra þá til Evrópu og selja dýrum dómi,og hvað vitum við hvað annað þeir láta stela fyrir sig. Þetta er einhverskonar skipulögð rússnesk mafía, og þeir eru búnir að koma sér fyrir á mjög mörgum vinsælum ferðamannastöðum bæði á Spáni og í Portúgal,ég bara vona að Madeleine litla hafi ekki lent í höndunum á svona mönnum og finnist fljótt, því engir foreldrar né barnið eiga  skilið að þurfa að ganga í gegnur svona sálarangist.Ég hef tengst Portúgal og Spán síðastliðin 30 ár og þekki vel til þessa landa,ég ferðast mikið um á bíl og þarf vissulega mikið að stoppa hvort sem er á bensínstöðum eða matsölustöðum,ég hef alla tíð verið mjög vör um mig og mína fjölskyldu þegar ég sé til stórra vöruflutningabíla, ég hef smá ráð fyrir þá sem ferðast um á bílum. LÍTIÐ EKKI AF BÖRNUM YKKAR ÞEGAR VÖRUFLUTNINGABÍLAR ERU NÁLÆGT, ÞVÍ ÞAÐ ER MJÖG AUÐVELT AÐ KIPPA BARNI UPP Í SVONA BÍLA OG AKA Í BURT,þeir fara um alla Evrópu. Í flestum tilfellum eru þetta bara venjulegt fólk að gera vinnu sína en maður veit aldrei hvað leynist í þessum stóru trukkum. Einhvern veginn slunginn sleppur.

 


Bílum lagt.

Hjólað í vinnuna,þetta átak er af hinu góða til að fá fólk til að nota bílinn minna, en ég verð reyndar að segja eins og er ,  ég get ekki séð ráðherra eða þá sem eru að vinna t.d. í bönkum eða öðrum skrifstofum koma hjólandi í vinnuna.Sjáið þið fyrir ykkur  konur sem vinna í drögtum og á háum hælum og full málaðar í framan hjólandi,ég geri ráð fyrir að þær muni koma sveittar og illa til hafðar eftir hjólreiðtúrin og það sama á við karlmennina,því það er ekki á öllum vinnustöðum aðstaða til að skipta um fatnað. Átakið ætti kanski frekar að fara fram um helgi þegar fjölskyldan getur farið saman að hjóla
mbl.is Ráðherrar á reiðhjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guernica

Þessa dag er minnst á Spáni og víða sem sorgardagur,þegar Ítalskar hersveitir og þýskar jöfnuðu Guernica bæinn nær við jörðu. í dag er sagt að enn heyrist í hríðskotabyssunum sem dundu á bænum,og þeir sem hafa áhuga á dulrænum málum hafa rannsakað þessi hljóð sem þar heyrast. En hvað varðar borgarastyrjöldina sem Spánn þurfti að ganga í gegnum,þá var hún hræðileg upplifun fyrir Spönsku þjóðina.Fjölskyldum var tvístrað,bræður börðust þeir voru ekki spurðir með hverjum þeir vildu berjast, nei þeim var skipt upp í lið.Listar gengu um í þorpum með nöfnum þeirra sem átti að taka af lífi,krikjgarðar bera þess enn merki þar sem aftökurnar fór þar fram, veggirnir eru hlaðnir byssuskotum. Fjölskyldur höfðu ekki mat fyrir sig og sína,mæður gengu stundum 90-100 km með yngst barnið til að faðirinn fengið að líta það augum,þetta gerðist fyrir 70 árum. Í dag eru  lönd sem enn eru að ganga í gegnum þessar hörmungar,að það skuli ekki vera hægt að koma í veg fyrir þetta árið 2007,það er líka sorglegt.


mbl.is Sjötíu ár liðin frá árásinni á Guernica
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

María Anna P Kristjánsdóttir
María Anna P Kristjánsdóttir
Góð er bætandi hönd,ill er spillandi tunga

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Picture 531

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband