Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Ég sé að aðrir bloggarar hneykslast á Spánverjum fyrir langan dóm það er þó búið að dæma í málinu og þeim verður komið fyrir lás og slá, og þessum mönnum verður ekki sleppt neitt á næstunni.Þarna er um að ræða glæpamenn frá Marokkó en aldnir upp á Spáni,sem sagt Spánskir arabar.Skrítið því á milli ársins 711 til 1492 bjuggu munameðtrúar menn og kristnir í sátt og samlindi á Spáni þar til Ísabella og Ferdinand konungshjónin ráku múhameðstrúar menn í burtu ásamt gyðingum,þetta er kannski hefnd.
Það eru ekki allir sannfærðir um að þetta séu höfuðpaurarnir,PP Partido Popular hægri flokkurinn sem töpuðu kosningunum 2 dögum eftir tilræðið eru sannfærðir um að ETA aðskilnaðar hreyfing Baska standi að baki tilræðissinnis.
Ég sjálf álít að einhverir fleiri standi þar að baki,þeir hafa ekki unnið einir þessir menn,ég hallast einnig að ETA því þeir hafa sambönd og möguleika til að nálgast þetta sprengjuefni,en þetta er bara mitt álit sem skiptir ekki miklu máli.
Hryðjuverkamenn í Madrid dæmdir í 40 þúsund ára fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 31.10.2007 | 13:11 (breytt kl. 22:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ýmislegt þarf að gera til þess að konur fái frið fyrir kynferðisáreiti karla,þessi hugmynd að einangra þá frá konunum í lestum er ekki svo vitlaus.Við hér á Íslandi erum svo heppin að vera svona fá og vera ekki með lestar af neinu tagi.
,Ég get alveg ímyndað mér hvernig það er að ferðast í þessum neðanjarðar lestum í stórborgum,þær hljóta að vera vel pakkaðar af fólki sem stendur þétt upp við næsta mann og það er á mörkum að það sé hægt að hreyfa sig.Neðanjarðarlestir hljóta að vera góður leikvöllur fyrir þá sem iðka þá iðju að áreita kynferðislega,ég sé það fyrir mér,hendurnar leika væntanlega stórt hlutverk í þéttbýli neðanjarða lestanna, káf hér og káf þar.Aumingja mennirnir,að vera svona miklir ræflar nú fá þeir skömm í hattinn,það ætti einfaldlega að láta þá ferðast með öðrum karlmönnum í sér vögnum og eyrnamerkja þá. Skömm fyrir þá,þeir fá ekki að koma nálægt konunum í neðanjarðar lestum.
Einungis fyrir konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 31.10.2007 | 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég ætla ekki að dæma hvort Guðlaugur Þór sé hæfur sem ráðherra vegna þess að hann er með þessu frumvarpi,hann um það.Það sem ég vildi koma á framfæri,er,hvers vegna erum við með þessi tollalög.Á Keflavíkurflugvelli, megum við ekki kaupa nema viss mikinn bjór og viss mikið af sterku víni á ekki að leyfa okkur að kaupa eins mikið að öllu víni eins og við viljum.Megum við ekki líka kaupa hvað sem er,hvers vegna erum við með tollara við komuna til landsins.?
Efast um hæfni heilbrigðisráðherrans til að gegna embætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.10.2007 | 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Því miður sá ég ekki fréttina í sjónvarpinu um þetta mál í gærkvöldi en mér skil að það hafi verið hræðilegt að sjá grátandi börnin hrædd og óvarin.Getur verið að fólk sé svona illt ?,það þykist vera að gera góðverk,eða jafnvel heldur sig vera að gera góðverk.Hvað er ætlar þetta fólk að gera.
Mér hryllir við tilhugsuninni,börnin eru slitin frá foreldrum í nafni góðverka jafnvel til að selja til kynlífsþrælkunar.Við vitum að úti í hinum stóra heimi þá er alltaf vöntun á líffærum,maður hefur heyrt um fátækt fólk sem hafa selt líffæri úr sér sem það má missa eins og t.d. annað nýrað,þetta fólk er að reyna að bjarga sér og fær borgað fyrir nýrað.Hugsið ykkur að heimurinn skuli vera þannig að fólk skuli þurfa að selja úr sér líffæri,og að til skuli vera aðrir sem notfæra sér erfiðleika annarra.
Ég spyr sjálfa mig,er það þetta sem átti að gera við blessuð börnin drepa þau og stela frá þeim líffærunum og selja þau svo hæstbjóðanda.Það eru margir í heiminum með steinhjarta,þeir hugsa hvað með nokkur svört börn frá Afríku,hver mun sakna þeirra,nokkrum börnum færra.Peningar geta gert mjög góða hluti en mjög oft illvirki, eins og þetta, í þessu tilfelli hafa það örugglega samlandar sem hafa fengið borgað fyrir að útvega börnin.Hvernig væri að þeir sem eru með steinhjarta,myndu bræða hjarta sitt aðeins og hugsa,af hverju ekki að hjálpa þessu fólki til að búa við mannsæmandi líf,byggja upp skóla, mennta börnin til þess að þau verði framtíð landsins,er það ekki sem við viljum öll hér og annarstaðar,af hverju ekki líka í Afríkuríkjum.
Sextán Evrópumenn ákærðir fyrir mannrán í Chad | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 30.10.2007 | 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Íslensk flugvél notuð við ólöglegan flutning barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 29.10.2007 | 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ef einhver ætti skilið að fá Íslensku Fálkaorðuna þá er það sú kona sem átti hugmyndina að Vildarbörnum,þessi kona lætur lítið yfir sér og vill ekki láta bera á sér,en hrós á hún svo sannarlega skilið fyrir þetta frábæra framtak.Þessi sjóður hefur gefið mörgum sjúkum börnum tækifæri til að ferðast til annarra landa og foreldrum þeirra.Ég hvet alla sem ferðast erlendis og eru með smáaura aflögu að láta það renna í Vildarsjóðinn,bara biðja flugfreyjurnar um poka frá Vildarsjóðnum það hjálpar svo sannarlega.
40 börn komast í draumaferðina fyrir tilstilli Vildarbarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 27.10.2007 | 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ekki veit maður lengur hverju maður á að trúa,allt í einu er komin teiknuð mynd a manni berandi barn í fanginu,hvað segir þessi mynd okkur,jú alls ekki neitt.Maðurinn á að hafa verið um 170cm að hæð og aldur á milli 35-40,þetta er hlægilegt,gæti verið hver sem er.
Þessi kona frú Tanner sagði mörgum mánuðum eftir 9 manna hópurinn borðaða síðustu kvöldmáltíðina saman, að hún hefði séð mann hegða sér undarlega fyrir framan Oceano Club íbúðirnar,einnig sagðist hún haf séð mann bera barn í fanginu frá íbúðunum og þetta var kl 21:15 annar úr hópnum sagði að frú Tanner hafi hvergi verið nærri íbúðunum.Hvað er Oceano Club 9 hópurinn að gera,er þetta samantekið ráð.?
Ég er farin að halda að þessi kvöldmátíð hafi verið plönuð af hópnum vitandi vits til að rugla fyrir einhverju sem hafði gerst,hvað gerðist og hvenær það vitum við ekki,og fáum seint að vita.
Mynd birt af hugsanlegum ræningja Madeleine | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 26.10.2007 | 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í Morgunblaðinu í dag á bls.9 er viðtal við ungann alþingismann,einn af mörgum sem vilja leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum.Þar bendir hann á ýmislegt hvað verðar þetta frumvarp,og ætla ég ekki að tíunda það hér,en það sem ég hjó eftir er það að ég er óvenjuleg.Í greininni er hann spurður hvort hann búist við því að frumvarpinu verði breytt,ungi alþingismaðurinn segist búast við því en :
"Hins vegar finnum við fyrir miklum stuðningi frá "venjulegu fólki". Hann segist ekki skilja af hverju þurfi að ræða þessi má með þeim hætti sem hefur verið gert.Það er fullt af venjulegu fólki sem ekki á við nein áfengisvandamál að stríða,og samkvæmt þeim sem styðja frumvarpið er engin ástæða til að láta meirihlutann gjalda fyrir að einhverjir hafa farið út af sporinu."
Ég var svo hissa þegar ég las þetta í morgun,ég hugsaði með sjálfri mér,heyrðu María hefur þú farið út af sporinu,og þá hvaða spori,ég er ein af þessum venjulegu "óvenjulegu manneskjum sem aldrei hefur orðið drukkin um ævina.
Þið sem viljið áfenga drykki inn í matvöruverslanir,ekki vera svona barnalegir,hvernig dettur ykkur í hug að halda fram að flestir þeir sem eru á móti þessu frumvarpi eigi við áfengisvandamál að stríða,það er svo víðsfjarri,það er fullt af "VENJULEGU" fólki sem er á móti frumvarpinu,og kunna svo sannarlega að drekka áfengi og misnota það ekki á nokkurn hátt.
Stjórnmál og samfélag | 26.10.2007 | 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lífið er bara svona stundum,það getur verið að þetta atvik sé að kenna fjölskyldunni að hún eigi að vera saman í fríi,ekki að einhverjir aðilar úr fjölskyldunni séu uppteknir allan daginn að leika sér að slá bolta,og ekki bara í einn klukkutíma, eða tvo það fer allur dagurinn í þetta.Fjölskyldan verður að hafa áhuga á sömu "íþrótt" svo að vel geti farið.
Ég hef oft séð það í ferðum að hjón fara saman í ferð t.d. til sólarlanda,strax daginn eftir komuna þá er bóndinn tilbúinn á tröppunum kl 09:00 að morgni til með allar græjur og fatnað í stíl,eiginkonan liggjandi alein út við sundlaug ekki vitandi hvað hún eigi að gera með daginn,síðan kemur bóndinn heim aftur um kl 17.00 jafnvel seinna,því það á sko að nota tímann.
Ég held bara að Icelandair sé fjölskylduvænt flugfélag.
Icelandair skildi 30 golfsett eftir á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.10.2007 | 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Hjón drukknuðu er þau reyndu að bjarga börnunum sínum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.10.2007 | 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid