Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Fyrsti sveinninn til byggða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.12.2007 | 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Pabbar í pössun í Hagkaupum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 29.11.2007 | 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég vaknaði í nótt um kl 04:30 við gífulegan hávaða fyrir utan húsið hjá mér,ég var fljót út í glugga því ég hélt að það væri verið að ráðast inn í kyrrstæða bíla,nei ekki aldeilis.Það sem ég sá voru tveir ungir drengir á milli 15-16 ára gamlir á fullu að brjóta glerið í strætóskýlinu sem stendur fyrir utan húsið hjá mér,þeim tókst allavega að brjóta tvö gler.Ég var fljót í símann og lét vita af þessu.
Það sem ég spyr sjálfa mig,hvað eru unglingar á þessum aldri að gera um kl 04:30 aðfaranótt þriðjudags,ættu þeir ekki að vera heima hjá sér sofandi ? Þurfa þeir ekki að mæta í skólann á morgnana? Hvernig er með foreldrana vita þeir ekki hvað börnin þeirra eru að gera og fylgjast þeir ekki með því hvort unglingurinn þeirra séu heima í rúminu sínu ?
Þegar unglingur er staðinn að verki við slíka skemmdarstarfsemi,þá finnst mér að það ætti að setja þá í vinnugalla frá borginni helst merkta ÉG BRAUT GLERIÐ,og láta þá hreinsa upp eftir sig í návist allra.Ég veit ekki hvort þessi aðferð dugi til að fá unglinga sem haga sér svona til að hugsa og skammast sín,en það mætti reyna.
Stjórnmál og samfélag | 27.11.2007 | 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Rannsókn á hvarfi Madeleine brátt hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.11.2007 | 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvað er að Bandaríkjamönnum,halda þeir virkilega að þeir hafi neitunarvald hvar sem er í heiminum.Hvað kemur það þeim við hvort Íslenskt flugfélag flýgur til Kúbu eða ekki.Eru Flugleiðir ekki búnir að borg fyrir vélina,hún er í þeirra eign.
Bandaríkjamenn halda væntanlega að allt sem er mitt sé þeirra líka,allavega vilja þeir hafa það þannig,og það er auðséð að það er ekki bara olían sem þeir vilja stjórna í heiminum einnig flugi.
Ég held að þeir ættu að líta sér nær og reyna að stjórna því sem þeir þurfa að stjórna á heimaslóðum,ég er nær örugg á því að á ýmsum málum er mikil þörf að taka á.
Finna að Kúbu-flugi íslenskra flugfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 19.11.2007 | 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
ttp://www.sundaymirror.co.uk/news/sunday/2007/11/18/madeleine-alive-we-re-100-certain-98487-20123788/
Stjórnmál og samfélag | 18.11.2007 | 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við skulum ekki dæma þá útlendinga of hart sem búa á þessum stöðum,þetta er oft fólk sem ekki er vant sömu þægindum og við hér á Íslandi,þeir koma hingað til að vinna og þéna peninga til að geta séð sér og sínum farboða í sínu heimalandi.
Nú kemur stór spurningin,hver leyfir slíka gisting fyrir þetta fólk ? er það ekki einmitt þar sem þarf að taka á málunum.Hverjir leyfa sér að bjóða þessu vinnufólki gistingu í afdala hesthúsi ?
Eru það vinnuveitendur? Ég veit það ekki,eru það kannski eigendur hesthúðana ? Ég veit það ekki heldur.Eina sem mig grunar er að þessir vinnumenn geta ekki greitt þá húsaleigu sem er á markaðinum í dag,því ef þeir gætu það þá þyrftu þeir ekki að koma til Íslands til að vinna.
Ef við Íslendingar þurfum á erlendu vinnuafli að halda þá verð ég nú að segja að okkur ber skilda til að bjóða þetta fólk velkomið og búa þannig í haginn að þeim líði vel hér.Ef við hugsum örlítið í okkar eigin barm,mörg af okkur höfum verið erlendis bæði við vinnu og nám.Hvað er það fyrsta sem við gerum,jú, við reynum að koma okkur sómasamlega fyrir og búa okkur til heimili. Heimili er nokkuð sem okkur er öllum nauðsyn,og það er sama í hvaða þjóðfélagsstétt við erum og af hvaða litarhætti,þetta ættu þeir að hafa í huga þeir sem leigja þessum vinnumönnum afdala hesthús.
Útlendingar búa alls staðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 13.11.2007 | 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú er ég aldeilis hissa,á nú að fjölga bílastæðum á meðan húsnæðið sem innanlandaflug býr við er til háborinnar skammar.Ég held að það sé bara til að ýfa upp sárið og setja plástur yfir.
Mín óskastaða væri að færa húsnæðið fyrir innanlandsflug yfir þeim megin sem Hótel Loftleiðir er og byggja nýja samgöngumiðstöð,það er nóg pláss á því svæði.Háskólinn í Reykjavík er byrjadaður að byggja á þessu svæði og af hverju ekki að bæta við samgöngumiðstöð.
Innanlandsflugvöllur þjónar ekki bara landsbyggðinni,frá þessum flugvelli fara flug til Grænlands og Færeyja.Þegar ég var barn þá var utanlandsflug farið frá Reykjavíkur flugvelli,og þá fannst mér allt í sambandi við flugið og flugvöllinn svaka flott.Ég er nú ekki ein af þeim sem nota innanlandsflug mikið en ég fór í vor til Færeyja,ég var ekkert lítið hissa þegar ég sá að flugstöðvarbyggingin sem ég sá í hyllingum sem barn hafði nær ekkert breyst og það eru nokkuð mörg ár síðan,byggingin er barn sína tíma og í velferðaþjóðfélagi sem þessu er varla hægt að bjóða uppá slíka aðstöðu.Ég skora á borgarstjórann að taka til höndunum og byggja nýja flugstöðvabyggingu hinu megin við flugvöllinn.
Bílastæðum við Reykjavíkurflugvöll fjölgað um helming | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.11.2007 | 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég vona að ég þurfi ekki að leita út fyrir landsteinanna til að fara í svona laiser aðgerð með mín pínu litlu bláu augu,né hér landi.Ég er viss um að aðgerðir sem þessar eru mun ódýrari erlendis en hér,en svo á einnig við um margt annað,ég ætla að telja upp:
Bílar,íbúðir,einbýlishús,fatnaður,skartgripir,matur af öllu tagi,leikföng,nú er ég hætt að telja.Flest er í raun um 30-40% dýrara hér en erlendis,en hvað getum við gert.Eigum við alltaf að hlaupa erlendis til að kaupa ódýrt,það getum við ekki,við getum jú farið í helgarferðir og keypt eitthvað smávegis en ekki hús og íbúðir.Íslenskt þjóðfélag er dýrt.
Þeir sem þurfa að fara í svona aðgerðir í raun,borga örugglega minna jafnvel ekkert, en þeir sem eru að fara vegna þess að þeir vilja ekki lengur ganga með gleraugu. Ég efast um að íslenskir læknar hafi lakari menntun en þeir sem erlendis eru,sennilega eru þeir betur menntaðir ef eitthvað er,og ef ég þarf í framtíðinni að fara í svona aðgerð þá færi ég hér á Íslandi.
Þrír milljarðar í augun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 9.11.2007 | 11:36 (breytt kl. 11:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ekki finnst mér hugmyndir Valsara vera ungviðnum til fyrirmyndar,ég vissi ekki betur en að þetta væri íþróttafélag,og í vinsælli kantinum.Ég veit vel að íþróttafélög eru svelt peningalega séð og verða þeir að útvega sér peninga með sölu á hinum og þessum varningi,og taka foreldrar þátt í þessu af fullum kraft.En að ætla sér að útvega peninga til íþróttamála með sölu á áfengi í húsakynnum sínum finnst mér full langt gengið.
Þetta segir okkur að íþróttafélög yfirleitt þurfa á góðum fjárstuðning að halda frá yfirvöldum til þess að svona hugmyndir fái ekki að blómstra innann félaganna.Skólarnir og íþróttafélögin eiga að vera góð fyrirmynd barnanna okkar.
Valsmenn vilja selja áfengi í hátíðarsal sínum öll kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 4.11.2007 | 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid