Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þá er loks komin skýring af hverju við konurnar erum með lægri laun en karlar,jú við vinnum töluvert minna en þeir,samkvæmt þessari könnun.Ég ætla ekki að rengja þessa könnun,hún hlýtur að vera samviskusamlega gerð.
.Það getur verið að við konur vinnum færri tíma en karlar utan heimilisins,en ef við ættum að mæla í klt og í krónum þá vinnu sem við leggjum á okkur til að halda heimilinu,börnum og fjölskyldunni gangandi(vissulega með hjálp bóndans)þá er ég nú viss um að margir yrðu hissa.Ég hef alltaf litið á það sem forréttindi ef konan getur verið meira heima,að hún sé til staðar þegar börnin koma heim úr skóla,þetta er því miður ekki mælt í peningum.
Við konur höfum margt á könnu okkar,sem ekki er metið í virðingastiganum.Við erum með börn framtíðarinnar í okkar höndum, þau sem taka við,þau sem eiga eftir að gera svona kannanir í framtíðinni. Vonandi þegar að því kemur þá hefur hlutverk konunnar hvort sem er á vinnumarkaðinum eða á heimilinu fengið þá virðingu sem það á skilið.
Karlar vinna tíu stundum meira en konur á viku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2007 | 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þá er byrjað að þrefa eina ferðina enn um hvort selja eigi léttvín og bjór í matvöruverslunum,ég segi nei.Þessir nýju og ungu þingmenn virðast leggja ofuráherslu á þetta máefni,er ekki hægt að ræða eitthvað sem skiptir meira máli.Vín yfir höfuðið er vel sett þar sem það er í sérstökum verslunum,þar sem aðgát er höfð hver kaupir hinar guðlegu veigar.
Íslendingar hafa þann háttinn á að mæla okkur við hinar stóru þjóðir í einu og öllu,líka í þessu máli,ég held að við ættum þá einnig að athuga hvernig ástandið er í áfengismálum hjá þessum þjóðum sem við miðum okkur við.
Ég þekki til Spánar þar sem áfengir drykkir eru í öllum verslunum og mjög auðvelt að nálgast,en er ástandið gott,nei það er það ekki.Spánverjar hafa stórar áhyggjur af ungviði sínum vegna drykkju,unglingarnir kaupa líters flöskur af sterkum bjór,léttu víni þeir eru ekki eins mikið í sterkur drykkjum þetta kaupa þeir í þegar að helgum kemur og eru þeir að skemmta sér alla nóttina eins og hér á íslandi
.Annað sem er mikið áhyggju efni á Spáni er akstur undir áhrifum áfengis,hvað unglinga varðar þá hefur það verið í tísku í mörg ár að aka á móti umferð á stórri hraðbraut,þar eru unglingarnir að spila rússneska rúllettu, ekki með byssu í þessu tilviki heldur akandi á bíl,það eru fleiri en1 eða tveir sem hafa látið lífið á þennan hátt.Spánverjar hafa gert sérstakt átak til að laga þessi mál hjá sér.
Ef við hugsum okkur hvernig eigi að standa að sölu áfengis í matvöruverslunum,þá hugsa ég að málið muni verða erfitt fyrir þá sem reka verslanirnar.Erfitt er í dag að ráða starfsfólk,og oft á tíðum eru krakkar 14-15 ára að afgreiða í stórmörkuðum,vegna þess að ekki fást aðrir í þessi störf,og er það þetta sem við viljum,að börn afgreiði okkur með áfengi,verður eitthvað léttara að fá starfsfólk í verslanir eftir að áfengi verður selt þar?.Ég held að þingmennirnir okkar verði að koma sjáfum sér niður á jörðina,þeir þurfa að athuga hvað er að gerast fyrir utan veggja Alþingis,hjá hinum almenna borgara.
Þrefað um sölu á léttvíni og bjór á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2007 | 12:39 (breytt 17.10.2007 kl. 09:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Reynsluleysi sjálfstæðismanna réði því hvernig fór" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.10.2007 | 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fyrrum minnihluti bjargaði Birni Inga fyrir horn" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 11.10.2007 | 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Svo sannarlega segi ég,þetta er eitt allsherjar klúður,enginn þykist vita neitt um málið og allir eru í því að benda á hvorn annan,eins og lagið segir EKKI BENDA Á MIG....
Það verður forvitnilegt að fylgjast með þessu máli næstu daga,Vinstri Grænir og Frjálslindir sjá sæng sína útbreidda,þeir ætla að kryfja málið til mergjar,það er hið besta mál svo framarlega sem það er gert á réttum grundvelli.
Björn Ingi: Kauprétturinn var mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 10.10.2007 | 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er ótrúlegt hvað nokkur hrunduð manns geta gert mikinn usla,ETA samtökin samanstendur af nokkrum hundruð manns beggja megin við landamærin þ.e.a.s. Í Baskahéraðinu Spánarmegin og Frakklandsmegin.Baskahéraðið er margra milljóna hérað,þar búa baskar sem eru bara venjulegt fólk og kæra sig ekkert um að vera annað en Spánverjar,enda hefur það sýnt sig að í hvert skipti sem Batasuna samtökin hafa tekið þátt í kosningum þá hafa þeir fallið eins og skopparakringla niður fjallshlíð.
Baksra eru orðnir þreyttir á herferð og glæpastarfsemi ETA manna,þeir þykjast vera að vinna að lýðræði Baksahéraðs,en þeir eru bara hreinir og beinir glæpamenn.Ég er búin að fylgjast með aðferðum þeirra í meira en 30 ár,og þvílíkur viðbjóður.Þeir stunda mannrán og krefjast lausnargjalds,þannig standa þeir undir vopnakaupum.Þeir ræna saklausum borgarfulltrúum og ef ekki er farið eftir kröfum þeirra þá er viðkomandi bókstaflega tekinn af lífi.
Ég man eftir einu tilfelli fyrir 10-15 árum,þar sem ungur piltur var tekinn af ETA samtökunum,og þar sem ekki var farið strax eftir kröfum þeirra þá var sýnt í sjónvarpinu aftaka hans,hann lá á hnjánum úti í skógi með hendur bundnar fyrir aftan bak og bundið fyrir augu hans,síðan stóð hettubúinn ETA maður með skammbyssu og skaut hann í hnakkann,það var hræðilegt,svona eru ETA menn sem þykjast vera að berjast fyrir lýðræði.Ég vona bara að Spánverjum takist í eitt skipti fyrir öll að berja niður samtök ETA.
Zapatero segir Spánverja reiðubúna undir baráttu við ETA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 10.10.2007 | 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gæsluvarðhald yfir níu Litháum rennur út á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 9.10.2007 | 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Útkoma úr könnun sem ég gerði er nokkuð athyglisverð.Ég spurði hvort Ólafur Ragnar Grímsson ætti að halda áfram sem forseti landsins.Það voru 34 sem svöruðu:
já sögðu 47.1%, nei sögðu 14.7% ,alls ekki 14.7%,viljum konu sem forseta 14.7% og alveg sama 8%
Er þetta ekki smá sýnishorn af vilja þjóðarinnar? Ef einhver vill breyta útkomu þessarar könnunar þá er hún enn til staðar og möguleiki að taka þátt.
Stjórnmál og samfélag | 8.10.2007 | 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Íslendingar duglegastir Evrópuþjóðanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 6.10.2007 | 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Frjálslyndir í ólgusjó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 3.10.2007 | 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid
Af mbl.is
Erlent
- Tekur upp hanskann fyrir biskupinn í Washington
- Bréf Bidens til Trumps: Megi Guð blessa þig
- Saksóknarar rannsaki embættismenn
- Nýr gróðureldur blossar upp í Los Angeles
- Rússneskt herskip gripið við njósnir við Bretland
- Könnun: Bandaríkjamenn vilja vísa milljónum brott
- Réðst á hóp leikskólabarna þar sem tveir létust
- Trump segir Rússa mega búast við frekari aðgerðum