Færsluflokkur: Dægurmál
Vitið þið að það eru um 63 veitingastaðir í Reykjavík og á morgun gamlársdag verða 15 staðir opnir og af þessum 15 eru 5 hótel sem hafa opið.
Við viljum fá erlenda ferðamenn til landsins,en viljum við að þeir svelti það var ekki svo langt frá því um jólin.Það er ekki nóg að fá ferðamenn til landsins við verðu að vera tilbúin til að taka á móti þeim.Eða viljum við í raun fá þá,því ef svo er þá þurfum við að bæta þjónustuna hjá okkur.
Nú um þessar mundir eru nær öll hótel í bænum sneisafullur af ferðamönnum,sem er hið besta mál því þeir koma svo sannarlega með gjaldeyrir til okkar,og ekki viljum við vera án gjaldeyris,en til að fá gjaldeyrir þurfum við að sýna meiri þjónustulund.
Dægurmál | 30.12.2008 | 19:33 (breytt kl. 19:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dægurmál | 10.12.2008 | 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Voru þetta ekki bara geimverur,þær hljóta að vita af allri vitleysunni sem er að gerast hér á landinu.Þær hafa hugsað með sér,jæja þá er komin tími til að bjarga Íslandi .En þær hafa bara hætt við því þær sáu að ekki var hægt að tjónka við okkur landann.
Óþekkt loftfar á íslenska flugstjórnarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 25.4.2008 | 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ekki er nú öll vitleysan eins,hvað ætlar hann,hún, að segja barninu kannski ekki neitt,eða elskan, ég var einu sinni kona og vildi verða karlmaður og lét breyta mér, en vildi ekki alvega sleppa því að vera kona,ég vildi vera bæði kona og karl.Þetta er kannski framtíðin.
Þungaður karlmaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 31.3.2008 | 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það sýnir sig að betra er að vera heiðarlegur en óheiðarlegur og ómerkilegur.Maðurinn verður hundeltur af fyrrverandi eiginkonu þar til hann finnst í alsælu með hjákonunni, suður í höfum.Hann fór með allt sparifé hans og eiginkonunnar,svakalega hlýtur að vera gott fyrir eiginkonuna að vera laus við svona ómerkilegan eiginmann,en hún verður að finna hann svo hún geti gefið honum makleg málagjöld.Þegar hún er búin að því þá mun hún lifa í alsælu það sem eftir er.
Týndur maður finnst í kvikmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 15.2.2008 | 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er komin deyfð í þetta mál,og er ekki lengur á forsíðum stórblaðana,en samt sem áður heldur rannsóknin einkvað áfram.Portúgalskir lögreglumenn ætla til Bretlands,væntanlega til að athuga betur með þau sönnunargögn sem þeir hafa á milli handanna.Sjá eftirfarandi slóðir á spænsku og ensku:
http://www.elmundo.es/elmundo/2007/11/28/internacional/1196240813.html
http://news.sky.com/skynews/article/0,,91210-1294678,00.html
Dægurmál | 28.11.2007 | 10:21 (breytt kl. 10:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það ætti að vera nóg vinna á Spáni fyrir þessa rúmlega 40 Rúmena sem sest hafa að í Tarragona á Spáni,en í stað þess að leita sér að vinnu og þéna sömu laun og aðrir þá velja þeir, leið glæpanna.
Það er með ólíkindum hvað glæpamenn geta verið útsmognir,glæpirnir eru úthugsaðir út í ystu æsar,að framleiða kreditkort í stórum stíl það þarf nú hugvit og stolna peninga til þess.
Sorglegt er af því að vita að þetta glæpalið skuli ekki eyða tíma sínum í eitthvað betra en þetta.Ég held að þeir (þau) ættu að prufa að setjast á skólabekk,með þennan útsmogna hugsunar hátt er ég viss um að þeir gætu nýtt hann vel í námi og komið sér vel fyrir sem venjulegur þegn í hvaða þjóðfélagi sem er.En hugur þeirra yrði að breytast,það yrði erfitt verkefni.
Nei því miður,þetta lið velur auðveldustu leiðina til að afla peninga,síðan lifa þeir í alsnægtum og blekkingum í smá tíma þar til lögreglan kemst upp um þá.Eftir það bíður þeirra þessi fína fangelsis vist,nokkuð sem þeir hafa unnið að stóran hluta ævi sinnar.Þeir hljóta að vera voða glaðir með afrek sín um ævina.
Kreditkortaframleiðsla stöðvuð á Spáni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 14.11.2007 | 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef gaman af gátum en er ekki aldeilis dugleg við að ráða þær,hér koma nokkrar:
Allir vilja eiga mig og að mér henda gaman niður við mig setja sig og sýna mig þá að framan.1.
Á ári hverju einu sinni alla menn ég sæki heim þa´sem ei mig eiga í minni ég óvörum finn og hverf frá þeim.2.
Á björtum degi ei birtis lýð bragnar sjá þá eigi en um nætur alla tíð er hún ljós á vegi.3.
Á fjórum stend ég fótum á fangi sný að sveinum háir og lágir lúta mér ég lýt þó aldrei neinum.4.
Dægurmál | 12.11.2007 | 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég vaknaði upp í morgun í bökunar stuði.Enska jólakakan er í ofninum,ég hef bakað sömu uppskrift í mörg ár,ég reyndar ætlaði að breyta til og var í allt gærkveldi að reyna að finna aðra uppskrift sem mér leyst vel á en allt kom fyrir ekki,ég notaði góðu gömlu uppskriftina með fullt af ávöxtum,hnetum og allskonar góðgæti.Það er svo skrítið,ég drekk aldrei áfengi vegna þess að ég held að það sé vont,en þegar desember nálgast þá verð ég alltaf að eiga mitt koníak,og sherry. Það eru einu skiptin sem ég fer á fyllirí,það er þegar ég fæ mér bita af jólakökunni minni og gæði mér á konfektinu sem ég bý til,þá spara ég ekki vínið því mér finnst það ómissandi.
Á meðan ég var að undirbúa jólakökuna fór ég að hugsa,hvað er að gerast það er svo stutt síðan ég bjó til þessa jólaköku,jú það er heilt ár síðan,vá hvað árið er fljótt að líða.Sagt er að eftir því sem maður eldist þá líður árið fljótar. Ég held að því betra sem árið hefur verið því fljótar líður það,og mitt ár,allavega til dagsins í dag hefur verið gott ár.
Dægurmál | 10.11.2007 | 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Góður nætursvefn er gulls ígildi.Það er sama hvort við tölum um börn eða fullorðna við þurfum öll að fá góðan nætursvefn.Ég er dálítið hrædd um að börn í dag fari seint að sofa,það þykir svo spennandi að geta vakað ,sum börn hanga í tölvunum langt frameftir jafnvel framyfir miðnætti og það á virkum degi.Hvernig er hægt að búast við reglufestu í lífi barns ef það sefur ekki vel og borðar ekki vel og rétt,þegar börn verða þreytt og stressuð,og það hefur örugglega áhrif á líkamsstarfsemina.Reglulegt matarræði,regluleg hreyfing og reglulegur svefn hlýtur að vera það sem er best fyrir börn og fullorðna.
Tengsl milli svefnleysis barna og offitu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 5.11.2007 | 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- ragjo
- gretaulfs
- harhar33
- kolbrunb
- gurrihar
- jp
- ekg
- toshiki
- bjorkv
- ingabesta
- otti
- leifurl
- haukurn
- reykas
- nonniblogg
- stebbifr
- juliusvalsson
- binni29
- mosi
- krissa9951
- kristjanma
- saethorhelgi
- thordursteinngudmunds
- malacai
- annaragna
- skinogskurir
- blues
- gattin
- brandarar
- elinora
- lucas
- kokkurinn
- handtoskuserian
- jonaa
- ketilas08
- ottarfelix
- sir
- pandora
- vefritid